154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er allt tilviljanakennt og búið að vera allt of lengi og oft svona krampakennd viðbrögð sem virðast hafa það markmið að vera einhvers lags aflátsbréfakaup gagnvart ríkisstjórninni. Sem dæmi, þó að það sé úr allt annarri átt, þá sjáum við þetta í árlegum friðarkaupum gagnvart einkareknum fjölmiðlum í stað þess að laga rekstrarumhverfi. Hér er einu sinni á ári tekin ákvörðun um að setja nokkur hundruð milljónir til þess að leysa í raun allt önnur vandamál heldur en orsaka vandann. Þannig að þetta er tilviljanakennd og ótrúverðug nálgun þessarar ríkisstjórnar á ríkisútgjöldin og við sjáum bara hversu ósamstæður hópurinn er og meira að segja innan flokka. En það er auðvitað furðulegast þegar koma fram þessar meldingar um flatan niðurskurð í flestum hornum, það eru auðvitað alltaf einhverjir undanskildir hverju sinni. En það er alveg hárrétt að það vantar pólitíkina í ríkisfjármálunum hvað varðar forgangsröðun.

Svo ég komi nú að því sem ég kom ekki að í fyrra svari: Eru brýn verkefni sem sitja á hakanum vegna fjárskorts? Ég held að það sé að mörgu leyti frekar að brýn verkefni sitja á hakanum vegna ósamstæðis ríkisstjórnarinnar og ákvarðana þar að lútandi vegna þess að ríkisstjórnin virðist ekki vera þungbært að eyða meiru heldur en til er í kassanum. Það er bara tekið lán hverju sinni. Hvort sem við horfum til hjúkrunarheimila eða annarra slíkra, samgönguinnviða eða hvað sem það skyldi vera, þá er það held ég miklu meira ákvörðun um að einn ráðherrann fái ekki meira en annar og þar fram eftir götunum sem (Forseti hringir.) orsakar það að ekki er hægt að komast áfram, þó að hitt væri miklu betri og eðlilegri skýring (Forseti hringir.) og betri t.d. gagnvart slagnum við verðbólgu og vexti.

(Forseti (ÁsF): Ég minni hv. þingmann á að ræðutíminn er tvær mínútur.)