154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[21:49]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Forseti. Mig langar að byrja á því að taka mér í munn orð hv. þm. Maríu Rutar Kristinsdóttur sem sagði hér fyrr í kvöld: Náttúran er við völd. Það er svo sannarlega þannig á Reykjanesskaga að það er náttúran sem er við völd. Það er ekki ríkisstjórnin heldur móðir náttúra. Það þýðir það að við ráðum lítið um það hvernig atburðir þróast þar á bæ en við ráðum því hvernig við bregðumst við þeim atburðum. Það hefur verið þannig núna allt frá því að þessi atburður hófst fyrir nokkrum árum síðan að við höfum fengið sviðsmyndir um hvað gæti gerst. Við höfum fengið viðvaranirnar um að eitthvað gæti nú gerst ef þetta færi allt á versta veg. Það virðist þó vera að þessi ríkisstjórn sem við búum við núna horfi alltaf bara á bestu sviðsmyndina en aldrei á þá verstu. En eins og við, sem höfum þurft að berjast við móður náttúru í gegnum áratugi, vitum er að þegar kemur að því að tækla það sem móðir náttúra er að gera þá vonumst við að sjálfsögðu eftir því að besta sviðsmyndin verði veruleikinn. En við búum okkur ávallt undir það hvernig við eigum að takast á við þann erfiðasta. Það er nefnilega þannig, eins og ég hef áður sagt úr þessum ræðustól, að ef við gerum hlutina og fyrirbyggjum það og gerum viðbragðsáætlanir og förum í forvarnir þá hafa nóbelsverðlaunahafar í hagfræði sýnt fram á í skýrslu sem unnin var fyrir Alþjóðabankann að fyrir hverja 1 kr. sem við verjum í forvarnir þá spörum við 6 kr. í viðbragði. En því miður er það þannig að ríkisstjórnin er svo ákvarðanafælin að hún bíður alltaf eftir því að við séum komin eins nálægt því að þurfa að fara í viðbragð, að við eyðum ávallt 6 krónunum en ekki 1 kr.

Það má eiginlega segja að eina ákvörðunin sem var tekin hér í öllu þessu ferli, sem var tekin áður en hlutirnir fóru að verða of slæmir, hafi verið gerð varnargarðanna, eða leiðigarðana eins og þeir heita réttu nafni. Þeir hafa jú sýnt það að með þeim hefur verið hægt að draga úr þeim skemmdum og því sem er að gerast í Grindavík. En því miður er það bara þannig að við vitum ekki hversu lengi þeir duga vegna þess hversu mikið er að koma af hrauni upp úr þessum eldgosum sem eru hér. Og við vitum heldur ekki hvað allt hitt sem er að gerast, jarðhræringarnar og margt annað, hvaða áhrif það hefur hreint og klárt á það hvort Grindavík verði byggileg áfram.

Það er búið að vera þannig hér inni á þingi að þegar kemur að málefnum tengdum Grindavík þá höfum við passað það að hér inni sé ávallt þverpólitísk samstaða um að öll mál tengd Grindavík fái forgang. Þau fá forgang hér inni í þingsal, þau fá forgang í nefndum. Það þýðir ekki það að við gerum ekki breytingar á þeim. Það þýðir ekki að við hlustum ekki á athugasemdir, en við getum samt gert betur en við höfum gert hingað til. Það er nefnilega þannig að með flestöll þau úrræði sem hefur verið farið í þá hefur alltaf verið sagt, alla vega við okkur í stjórnarandstöðunni: Þetta er fyrsta aðgerðin, þetta er almenna aðgerðin, en síðan munum við finna út hvernig við styðjum við þá sem falla á milli.

Við bentum strax á t.d. þegar verið var að skoða húsnæðismálin, uppkaupin á húsnæði, að það yrðu einhverjir sem féllu á milli, það yrðu einhverjir sem ættu ekki lögheimili á réttum stað, einhverjir sem væru að tapa öllu því sem þau hefðu lagt á sig við að byggja upp, m.a. heimili fyrir sig og börnin sín, einhverjir sem uppfylltu ekki laganna bókstaf sem við vorum að setja. Og ávallt var okkur sagt: Við munum laga lögin og við munum laga hlutina til þess að ná yfir þetta fólk sem fellur á milli skips og bryggju. En hér er enn og aftur verið að framlengja þær aðferðir og þær aðgerðir sem við erum þegar búnir að samþykkja og það er ekki verið að aðlaga þær og það er ekki verið að breyta þeim. Þar þurfum við að gera betur. Ég veit það, eins og aðrir hv. þingmenn hafa sagt og ég held að það sé sama hvort við erum í stjórn eða stjórnarandstöðu, að við höfum öll lent í því að fá tölvupósta eða símtöl eða heimsóknir frá atvinnufyrirtækjum, frá einstaklingum í Grindavík sem eru að falla á milli skips og bryggju. Þar verðum við að gera betur. Við skuldum Grindvíkingum það að við stöndum við bakið á þeim nú þegar náttúran er við völd.

En hvernig á að fjármagna slíkt verkefni? Við sjáum hér í þessu frumvarpi til fjáraukalaga ýmsar aðgerðir sem verið er að framlengja eða breyta. En við sjáum líka að upplýsingar um það hvernig eigi að fjármagna ákveðna hluti — við sjáum það t.d. að kostnaðurinn við uppkaup á húsum er orðinn hærri en reiknað var með. Það eru sennilega tvær ástæður fyrir því: Brunabótamatið hefur verið aðeins hærra og líklega eru það fleiri sem hafa beðið um að húsnæði þeirra væri keypt en við reiknuðum með. Að hluta til á að fjármagna þetta með því að taka peninga út úr Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Það er náttúrlega ákveðin bókhaldsbrella til að ná í féð þangað inn en ég, rétt eins og stjórn náttúruhamfaratryggingar, lýsi miklum áhyggjum yfir því að verið sé að gera náttúruhamfaratryggingu ekki eins vel stæða og hún var. Sannleikurinn er sá að við búum í landi þar sem náttúruhamfarir verða og það reglulega og við munum sjá enn meira af þeim á komandi árum t.d. vegna loftslagsbreytinga. Þá er eins gott að okkar grunnkerfi til þess að tryggja fólk vegna náttúruhamfara, náttúruhamfaratryggingar, geti raunverulega staðið við skuldbindingar sínar. Við eigum eftir að sjá hvort þessi aðgerð að taka peninga út úr sjóði náttúruhamfaratryggingar muni t.d. hafa neikvæð áhrif á endurtryggingarsamninga sem bráðum verður farið í á ný. Þannig að þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða alvarlega og hugsa vel hvort ætti að útfæra á þennan máta.

Við höfum undanfarna daga verið að ræða í atvinnuveganefnd svokallaðan afurðasjóð. Það er svona nokkurs konar hamfaratrygging fyrir fyrirtæki sem eru með afurðir eða hráefni og þurfa að rýma með stuttum fyrirvara, en hráefnið eða afurðirnar skemmast áður en fólki er hleypt aftur inn. Það er dálítið athyglisvert; þarna er peningur settur til hliðar í sjóð, peningur sem ekkert er víst að á þurfi að halda. Málið er að það er orðið þannig, sem betur fer, að það er farið að styttast tíminn þangað til aðilar fá að fara inn fyrir til að bjarga verðmætum og því er spurning hvort ekki hefði hreinlega verið einfaldara að þetta stuðningsúrræði væri bara greitt beint úr ríkissjóði eftir þörf. Sennilega eru þetta ekki þetta háar upphæðir. Það að setja 400 milljónir í þennan sjóð gæti verið óþarfaeyrnamerking á þessu stigi. En aðalatriðið er að sjálfsögðu það að veita þessum rekstraraðilum öryggi um það að ef þau eru að koma þarna inn að vinna hluti og eru með starfsemi þá sé rekstraröryggi varðandi afurðirnar og hráefnið ekki stefnt í voða.

Ég hefði líka gjarnan viljað sjá dýpri upplýsingar um hin úrræðin sem verið er að framlengja. Þar er verið að gefa fjárheimildir til framlengingar, en hversu mikið af þeim þurfum við raunverulega á að halda, vegna þess að nú erum við búin að fara í það að kaupa upp hús? Ég veit það bara sjálfur, búandi í Reykjanesbæ, að þar mikið um uppkaup af nýju húsnæði og gömlu reyndar líka, frá Grindvíkingum. Ég hlakka mikið til að fá góða Grindvíkingar sem nágranna sem allra fyrst en þá náttúrlega hættir á sama tíma þessi viðbótarhúsnæðisstuðningur, fólk hættir að þurfa hann. Þannig að mér finnst varðandi þetta allt, varðandi húsnæðisstuðninginn, varðandi vinnumarkaðsstuðninginn — ég hefði viljað sjá dýpri upplýsingar um það hversu mikið er verið að nýta hann og hversu mikið af þessum upphæðum við teljum að við munum sjá raunverulega koma til greiðslu. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að hafa heimildir en þær þurfa kannski ekki að vera jafn háar ef þær eru ekki nýttar.

Svo tel ég mjög mikilvægt að við náum þverpólitískri sátt um það hér á næstu misserum hvernig við ætlum að byggja upp viðnámsþol okkar sem ríkis gagnvart þeim hamförum sem verða hér í framtíðinni, hvort það er með þjóðarsjóði, hvort það er með öflugri náttúruhamfaratryggingu. Þetta er umræða sem ég tel að sé mikilvægt að farið sé í þvert á alla pólitíska flokka og hvet hæstv. ráðherra, hæstv. ríkisstjórn til þess að leggja í þá vinnu sem fyrst vegna þess að hamfarirnar gera aldrei boð á undan sér.