154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[22:05]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem var um margt áhugaverð. Hann talaði um einstaklinga og fyrirtæki sem féllu milli skips og bryggju þar sem björgunaraðgerðir eða stuðningsaðgerðir næðu ekki til einstaklinga. Þar má t.d. nefna einstaklinga sem eiga húsnæði sem þeir eiga ekki lögheimili í í Grindavík og jafnvel einstaklinga sem eru með húsnæði sem er bara að hluta til skráð lögheimili þeirra, eins og þegar þeir byggja stærra húsnæði og eru með tvö fasteignanúmer. Hvað finnst hv. þingmanni um það þegar verið var að framlengja tímabil stuðningsaðgerðanna og engum aðgerðum var breytt í framkvæmd hvað það varðar? Það væri gott að heyra álit hv. þingmanns á því.

Svo er annað atriði sem mig langar að spyrja um. Það lýtur að því að það er liður sem heimilar hæstv. fjármálaráðherra að ráðstafa allt að 15 milljörðum kr. úr sjóðum Náttúruhamfaratryggingar Íslands til Fasteignafélagsins Þórkötlu í samræmi við 7. gr. laga frá í fyrra, nr. 16/2024, sem nýttir verða til að fjármagna hluta af hlutafjáraukningu félagsins til að standa undir kaupum á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Hann kom inn á mjög áhugaverðan punkt sem lýtur að því hvort þetta gæti haft áhrif á endurtryggingar náttúruhamfaratrygginga og fjármögnun Nú á ég ekki sæti í atvinnuveganefnd en hv. þingmaður á sæti í atvinnuveganefnd, að mér skilst. Hafið þið fengið greiningu hvað það varðar, hvort það hafi áhrif á fjármögnun náttúruhamfaratrygginga að taka svona háa fjárhæð út úr þeim? Hver eru rökin fyrir því að taka þetta úr tryggingarsjóðnum og setja til fasteignafélagsins? (Forseti hringir.) Er þetta þannig að það minnki útgjöld seinna meir af því að fasteignirnar eru þegar komnar til ríkisins?