154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[22:12]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum seinna andsvarið. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni varðandi eignatjónið, við eigum að bæta mun meira. En í hvert sinn sem það er nefnt, hvort sem það er í viðtölum í fjölmiðlum eða hér í þingsal, þá bendir ríkisstjórnin alltaf á það að hún sé búin að gera eitthvað, hún sé búin að bjarga þessu, hún sé búin að gera þetta. Það er bara ekki nóg. Það eru göt í því sem við erum búin að gera og það er óréttlátt að hluti Grindvíkinga sitji eftir með sárt ennið af því að ríkisstjórnin telur einfaldlega að hún sé búin að gera nóg.

Varðandi náttúruhamfaratryggingar þá heyrir það mál reyndar ekki undir atvinnuveganefnd, sennilega heyrir það undir efnahags- og viðskiptanefnd. En það er hins vegar þannig að þetta eiginfjárhlutfall þeirra, hvað þau „covera“ mikið af þessum 10% af virði allra húsa í landinu, er að minnka og það er orðið hættulega lágt. Ekki var nægt eigið fé til að standast þá kröfu. Þegar erlendu endurtryggingarfélögin sjá að það er ekki nægur peningur í þeim sjóði þá veit ég ekki hvort það hefur bein áhrif á það hve góð kjör við fáum frá þeim. Það er eitthvað sem stjórn náttúruhamfaratrygginga eða forstjóri þarf að svara en það er alla vega hætta á því að þeim mun minna af eigið fé sem við erum með í náttúruhamfaratryggingu, því verr séum við búin undir það að takast á við jafnvel enn stærri áföll en þetta er.