154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[22:14]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Mig langar ekki að lengja þessa umræðu sem hefur verið ansi góð í dag þar sem við höfum farið yfir að það vantar alltaf næsta skrefið í aðgerðum ríkisstjórnarinnar gagnvart íbúum Grindavíkur. Þetta er að verða nokkuð áhyggjuefni vegna þess að það líður að þinglokum fyrir sumar og næsti séns á að koma í gegn einhverjum lagabreytingum í þessum sal verður þá í september, október. Það er ansi langur tími fyrir íbúa Grindavíkur og þau litlu fyrirtæki sem hafa sent okkur ítrekaðar áskoranir um skjól. Ég nefni þetta t.d. með vísan í ágæta umsögn sem ég talaði um í andsvari fyrr í kvöld, sem var send af Bryndísi Gunnlaugsdóttur Hólm þar sem hún rifjaði upp að þegar við hér í þingsal samþykktum lög nr. 16/2024, um uppkaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, þá hafi komið fram bæði við umræður hér í sal og umfjöllun efnahags- og viðskiptanefndar að þar væri bara um fyrsta skref að ræða. Áfram yrði unnið í að mæta þörfum einstaklinga og atvinnurekenda, þ.e. þeirra sem lögin ná ekki til, vegna þess að það lá fyrir strax í byrjun þessa árs þegar þau lög voru til umfjöllunar að þau væru ekki allsherjarheildarlausnin. Þau næðu flestum, lög um uppkaup íbúðarhúsnæðis næðu langflestum fjölskyldum í Grindavík en þau skildu t.d. eftir þá einstaklinga sem ekki eru með lögheimili í íbúðarhúsnæði sem þeir eiga í bænum. Þetta er ekki stór hópur en það munar um það eigið fé sem fólkið er nú með fast í íbúðarhúsnæði í Grindavík sem lögin ná ekki utan um. Þörfum þessara einstaklinga þarf að mæta alveg eins og þörfum annarra einstaklinga sem Alþingi hefur ákveðið að mæta.

Síðan eru þessi skil sem voru dregin á milli einstaklinga og atvinnureksturs, og þá vísa ég aftur til þeirrar umsagnar sem bendir á ansi góða hliðstæðu vegna þess að í skattalögum er litið svo á að einstaklingar geti átt allt að tvær íbúðir til útleigu án þess að það teljist atvinnurekstur. Við hljótum að velta fyrir okkur, ef við erum að leita að einhverjum jafnvægispunkti, einhverjum stað til að draga línuna á milli þeirra sem — það er svona varla að ég vilji kalla það það en jú, ég held við þurfum að segja það — Alþingi finnst eiga skilið að njóta skjóls og hinna sem ekki munu njóta þess, þá er kannski gott að finna hliðstæðu af þessu tagi. En ég held líka að með því værum við að ná utan um stærstan hluta af þeim hópi sem enn liggur utan garðs.

Fjölbreyttari og klæðskerasniðnari lausnir, hefur þetta verið kallað. Þetta snýst bara um að hlusta á fólkið í samfélaginu, þarfir þess og sjá hvernig hægt er að mæta því. Þetta snýst líka ekkert endilega um einhvern aukinn tilkostnað. Sumar þær aðgerðir sem ræddar hafa verið hér í dag og fyrir viku þegar við vorum með frumvörp til umfjöllunar varðandi framlengingar á stuðningi til Grindavíkur, sumar af þeim lausnum myndu mögulega leysa ríkið undan öðrum kostnaði. Dæmið sem við tókum hér í umræðunni fyrir viku var af litlum vinnustað í Grindavík. Af því að ég sé hér Tómas A. Tómasson úti í sal þá ræddum við um hamborgarasjoppu sem maður gæti kannski rekið í Grindavík og svo bara lokar bærinn. Steypan fer ekki neitt en við förum og allur okkar peningur er bundinn í þessu húsnæði. Mögulega er hægt að losa tækin úr því, mögulega er hægt að færa þau eitthvert annað, en án þess að losa eigið féð sem er bundið í steypunni í Grindavík þá er kannski erfitt fyrir lítið fjölskyldufyrirtæki að koma undir sig fótunum annars staðar. Ef það hins vegar gæti það, ef það væri hægt að losa eigið fé út úr steypunni þá væru mörg af þessum fyrirtækjum í það góðum málum með það eftirsótta vöru eða það flinkt starfsfólk, þá myndu góð fyrirtæki festa rætur hvar sem er annars staðar og blómstra. Við það myndi ríkið losna undan sértækum stuðningsaðgerðum sem eru látnar renna til fyrirtækja í rekstrarstoppi innan Grindavíkur. Ég held að ríkið myndi líka losna undan afleiddum kostnaði af gjaldþroti þessara fyrirtækja, hvort sem það er í gegnum fyrirtækið sjálft eða atvinnuleysisbæturnar sem einstaklingar þyrftu að sækja sér eða hvað það er. Þetta safnast þegar saman kemur og fjárfesting í þessu gæti verið hyggileg, að fjárfesta í uppkaupum á atvinnuhúsnæði innan Grindavíkur.

Þetta héldum við líka að væri eitt af þeim næstu skrefum sem ætti að skoða. Þegar hér var samþykkt frumvarp um uppkaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík héldum við að það ætti að halda áfram að vinna að því að mæta þörfum íbúa og atvinnurekenda í Grindavík, en það hefur ekki verið gert. Það sem hefur verið gert, sem við fengum hér til umfjöllunar fyrir viku og sem þetta fjáraukalagafrumvarp snýst um, er að framlengja það sem var gert í febrúar. Það er gott svo langt sem það nær en það er framlenging á fyrsta skrefinu og íbúar í Grindavík eru að kalla eftir fleiri skrefum.

Þetta hljómar allt svo undarlega þegar við síðan hlustum á ræður þingmanna, þingmanna stjórnarflokkanna — sem reyndar hafa hvorki mætt í þessa umræðu né umræðuna sem var hér fyrir viku, hafa kannski misst eitthvað dampinn í því að sýna Grindvíkingum stuðning hér í sal — þegar við heyrum stjórnarþingmenn tala um það að auðvitað ætli þeir að gera allt sem þarf, auðvitað muni þeir standa vaktina við fólkið í Grindavík. En þegar fólkið í Grindavík kemur og segir: Já, en ætlið þið ekki að hjálpa fólki sem á íbúðarhúsnæði þar sem það er ekki með lögheimili? Auðvitað ætlum við að gera það sem þarf, við ætlum bara ekki að gera það. Já, en ætlið þið ekki að standa með litlu fyrirtækjunum sem eru neydd til að hafa lokað? Ætlið þið ekki að hjálpa þeim að losa eigið fé út úr bænum svo þau geti haldið áfram rekstri? Auðvitað gerum við það sem þarf, við ætlum bara ekki að gera þetta.

Ég verð að viðurkenna, forseti, að þetta finnst mér orðið langþreytt og dálítið kalt viðmót gagnvart Grindvíkingum. Ég hefði búist við því að þegar fólk talar um að það ætli að gera það sem þarf þá myndi það gera það sem þarf. Og að þegar við erum að verja milljörðum eða tugum milljarða í að kaupa íbúðarhúsnæði í Grindavík, þar sem var t.d. talað um að auðvitað yrði lögheimiliskrafa túlkuð mjög rúmt þegar umsagnir yrðu skoðaðar, þá myndum ekki sætta okkur við að hluti Grindvíkinga yrði skilinn eftir. En þrátt fyrir það sem var rætt í tengslum við frumvarpið sem varð að lögum nr. 16/2024, um uppkaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, þrátt fyrir það sem var sagt um að auðvitað yrði fólk sveigjanlegt þegar kæmi að því að meta hvort fólk ætti heimtingu á þessu og auðvitað myndum við ekki hengja okkur í einhverja þrönga skilgreiningu á lögheimilisskilyrðinu, þá er reyndin allt önnur. Reyndin er sú að fjöldi íbúa Grindavíkurbæjar situr eftir með sárt ennið. Þetta er hópur sem átti að gera allt sem þarf til að standa með, bara ekki akkúrat það sem hann er að biðja um.

Ég veit ekki alveg hvað við getum gert úr þessu. Ríkisstjórnin virðist vera að setja flappsana út og lendingarbúnaðinn niður. Þau eru að búa sig undir það að klára fyrir sumarið og hér stöndum við með frumvarp í höndunum sem er ekkert að gera slæma hluti fyrir Grindavík en er bara ekki að gera akkúrat það sem fólk er að biðja um. Þau eru ekki að mæta Grindvíkingum þar sem þeir eru staddir, þau eru ekki að mæta þörfunum. Þetta eru ekki úrræði sem bjóða þær klæðskerasniðnu lausnir sem þörf er á heldur er þetta fyrsta atrenna sem var tekin hér í febrúar endurtekin.

Ég verð samt að halda í vonina, forseti, og trúa því að þær nefndir sem eru með þessi mál til umfjöllunar núna muni finna eitthvað út úr því fyrir þinglok með að víkka út þessi úrræði, með því að hlusta á þær umsagnir sem hafa borist. Það voru 45 umsagnir sem efnahags- og viðskiptanefnd fékk við framlengingarfrumvarpið, frumvarpið um að framlengja úrræðin frá því fyrr í vetur, og ég reikna með að fjárlaganefnd fái svipaðar umsagnir við þetta fjáraukalagafrumvarp sem tekur á svipuðum atriðum. Verðum við ekki að vona að nefndarmenn hlusti og bregðist við og sýni í verki að þau ætli að gera það sem þarf, að þau ætli að standa vaktina með Grindavík, eins og þau kalla það, en ekki gera allt nema akkúrat það sem Grindvíkingar eru að biðja um þessa dagana?