fjáraukalög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Hann talaði um fyrirtæki sem hefðu þurft að flytja starfsemi sína, en ég hef ekki orðið var við neina styrki til þess að hjálpa fyrirtækjum að flytja starfsemi sína, það var ekki inni í húsnæðisstuðningnum til að hjálpa íbúum Grindavíkur að flytja. Ég hefði haldið að það væri mikilvægt að fyrirtæki gætu flutt starfsemi sína annað og verið þá með verðmætasköpun sína í öðrum byggðarlögum, fjarri gossvæðinu þar sem jarðhræringarnar eru. Mér finnst lærdómskúrfan raunverulega ekki hafa verið til staðar þegar verið var að framlengja þessar stuðningsaðgerðir. Ég hefði haldið að það hefði verið æskilegt að leggja mat á árangurinn sem orðið hefur og sjá til þess að við framlenginguna næðu stuðningsaðgerðirnar til þeirra einstaklinga og fyrirtækja sem ekki hefur verið stutt nægilega við, þeirra sem falla milli skips og bryggju. Ég held að það sé ákveðin óánægja sem endurspeglast t.d. í því að Þorbjörn, öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, segir upp átt 58 einstaklingum. Þeir eru með ákall í fréttatilkynningu sinni til stjórnvalda um að fara í aðgerðir. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns varðandi lærdómskúrfuna, sem ég held að hafi ekki verið til staðar, það kemur alla vega ekki fram í neinum breytingum. Og líka varðandi þessa Covid-aðferðafræði, sem ég vil kalla, hefði ekki þurft að nálgast þetta með öðrum hætti og meira bara að greina sérþarfir jafnvel einstakra fyrirtækja og hvers eðlis fyrirtækin væru og hvort það ætti að flytja þessa starfsemi annað þannig að verðmætasköpunin gæti haldið áfram annars staðar? En í sjávarútvegi geta bátarnir náttúrlega alltaf landað annars staðar. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á þessu.