154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[22:29]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Nú man ég ekki alveg rúmfræðina mína en ég held að rétta svarið sé að segja að lærdómskúrfan er flöt. Það er mjög takmarkaður lærdómur sem stjórnvöld virðast vera að draga af aðstæðunum. Þau þurfa enga sérstaka spádómsgáfu til að lesa í stöðuna. Það liggur allt fyrir í umsögnum. Þetta liggur allt fyrir í viðtölum. Þetta liggur allt fyrir allra augum sem vilja sjá. Kostnaðurinn við að koma sér upp heimili eða starfsaðstöðu utan Grindavíkur, það liggur alveg fyrir að það er ákall um að þeim kostnaði sé mætt. Verkalýðsfélag Grindavíkur t.d. hefur kallað eftir því og ítrekað að það sé mikilvægt að styðja fjárhagslega við íbúa Grindavíkur sem hafa þurft að taka upp búsetu utan bæjarins vegna þess að því fylgir sjálfkrafa kostnaður. Þá hefur fjöldi umsagnaraðila bent á mikilvægi þess að auka stuðning við fyrirtæki. Hv. þingmaður nefnir hér stórt sjávarútvegsfyrirtæki. Ég held að við þurfum kannski að greina á milli fyrirtækja eftir því hvaða færum þau eru í til þess að koma undir sig fótum annars staðar. Fyrirtæki með mikið eigið fé á lager geta leigt húsnæði annars staðar. Þau geta komið sér upp aðstöðu annars staðar. Fyrirtæki með starfsaðstöðu utan Grindavíkur áður en eldsumbrotin hófust geta einfaldlega flutt sína starfsemi þangað og lokað starfsstöðinni í Grindavík. Það verður erfiðara fyrir öll þessi fyrirtæki, en fyrirtækin sem er algerlega óskiljanlegt að sé ekki búið að taka utan um eru þau sem geta ekkert annað, (Forseti hringir.) sem eru annaðhvort með starfsemi sem er háð því að vera í Grindavíkurbæ eða starfsemi sem er föst vegna bundins eigin fjár, en gæti blómstrað hvar sem er annars staðar (Forseti hringir.) ef eigendurnir fengju bara taka eigið fé úr þessari steinsteypu í Grindavík.