fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hann kom inn á mjög mikilvæga punkta. Þegar við horfum á Grindavík þá erum við að tala um eignatjón út af húsnæði. Við erum tala um tjón út af skertri verðmætasköpun og að sjálfsögðu tjón fyrir íbúana sem hafa þurft að flytja og yfirgefa vinnu sína. Ég held að það hefði þurft að minnka tjónið með því að aðstoða fyrirtæki við að flytja verðmætasköpunina annað. Það væri fróðlegt að fá tölur um það hversu mikil verðmætasköpun í samfélaginu hefur minnkað vegna þess að við lokuðum eiginlega einu bæjarfélagi. Við erum jú að reyna að hjálpa með rekstrarstuðningi en þá verður líka að vera rekstrarstuðningur til að flytja atvinnutækin til. Það er líka mjög mikilvægt. Ég held að við ráðum vel við þennan stuðning við Grindavík, sérstaklega ef við horfum til Vestmannaeyja, þar var miklu stærra hagkerfi og miklu fjölmennara samfélag. En varðandi aðferðafræðina sem er verið að nota þá finnst mér að það mætti vera meiri fókus á það að ná til þessara þriggja þátta; að koma í veg fyrir að verðmætasköpun minnki, eignatjónið og svo að sjálfsögðu fólksflutningarnir, að útvega fólki húsnæði og koma í veg fyrir aukna verðbólgu með því.
Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á því hvort hann telji að þessar aðgerðir séu nægar varðandi verðbólguna, útgjaldaaukningu, vaxtabyrði ríkissjóðs og líka það að það virðast ekki vera neinar mótvægisaðgerðir til að stemma stigu við aukinni þenslu og aukinni verðbólgu með þessum aðgerðum. Það er líka gríðarlegur kostnaður fyrir samfélagið og þessi kostnaður dreifist meira á þá sem skulda húsnæðislán út af vaxtabyrðinni. Stuðningurinn kostar samfélagið og hann dreifist ekki nægilega jafnt á alla landsmenn, tel ég, miðað við hvernig þetta er fjármagnað.