154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

fjáraukalög 2024.

1146. mál
[22:34]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Nú verð ég að viðurkenna að hv. þingmaður er búinn að reka mig á gat vegna þess að ég er ekki með verðbólguútreikningana það mikið á hreinu að ég muni hvaða áhrif þessir tilflutningar frá Grindavík eru líklegir til að hafa. Hins vegar þegar við vorum að ræða frumvarp um uppkaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík hér fyrr í vetur þá kom fram að jú, jú, auðvitað myndi þetta mynda eftirspurnarþrýsting á markaði sem nú þegar er útblásinn og viðkvæmur fyrir öllu raski. Hins vegar, þó að þetta sé heilt sveitarfélag, þá væri þetta kannski ekki það mikill fjöldi miðað við árlega fólksfjölgun síðustu ár og liggur við í áratugi að hann myndi umturna markaðnum.

Hvað varðar síðan fyrri hluta þess sem hv. þingmaður talaði um þá hefur skerta verðmætasköpunin náttúrlega líka verðbólguáhrif. Það að fyrirtækið loki og verðmætasköpun skerðist þar með sem annars hefði jákvæð áhrif á efnahagslífið, hefur áhrif. Efnahags- og viðskiptanefnd hafa t.d. borist umsagnir um framlengingu á úrræðum sem eru núna til umfjöllunar í þeirri nefnd. Þangað hafa borist töluvert margar umsagnir frá atvinnurekendum sem eiga kannski einhverja tugi eða upp í kannski 200 milljónir bundnar í húsnæði sem er veitingastaður í Grindavík eða bakaríi í Grindavík eða hvað það er. Þetta eru fyrirtæki sem ætti miklu frekar að hjálpa að koma sér fyrir á öðrum stað (Forseti hringir.) til að hægt sé að halda í þá verðmætasköpun og þá atvinnusköpun sem þar er til að þau geti (Forseti hringir.) stutt við atvinnulífið annars staðar.