breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Eins og hv. þingmaður nefnir sjálfur er auðvitað grundvallarmunur á almennum krónutölugjöldum sem lögð eru á heimili og fyrirtæki og þjónustugjöldum eins og hér er verið að mæla fyrir um. Áður en ég vík að þessu með gjaldtöku almennt, og því að uppfæra gjöld út frá þróun á vísitölu neysluverðs, vil ég segja að ég er sannarlega þeirrar skoðunar að fjöldi stofnana, ríkisstofnana og opinberra stofnana sem sinna mikilvægu hlutverki í þágu almennings, sé vanfjármagnaður. Ég held að það sé reyndar bara í undantekningartilvikum sem það er endilega skynsamlegt að leysa úr því með því að taka upp einhvers konar þjónustugjöld. Oftast held ég að það sé bara skynsamlegra að styrkja betur rekstrargrundvöll stofnananna á fjárlögum til að sinna þeim verkefnum sem við gerum kröfu um að sé sinnt.
Varðandi krónutölugjöld almennt á heimili og fyrirtæki í landinu þá get ég tekið undir það með hv. þingmanni að það var glannaskapur og algerlega út úr öllu korti hjá ríkisstjórninni að verðtryggja krónutölugjöldin upp í topp þegar verðbólgan var hvað mest í fyrra. Þetta lak beint út í verðlag og torveldaði þannig glímuna við verðbólgu. Þarna hefði einmitt frekar átt að hækka (Forseti hringir.) í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans eins og oft hefur verið gert þegar staðan í efnahagsmálum er með þessum hætti.