breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég held einmitt að þegar kemur að orkumálum skipti gríðarlegu máli að grípa alla þessa ávexti sem eru í augnhæð, ef svo má segja. Þess vegna studdum við t.d. frumvarpið um aflaukningu núverandi virkjana. Þess vegna höfum við kallað mjög eftir því að flutningskerfið verði styrkt. Og til viðbótar við þetta allt höfum við verið að kalla eftir að horft verði til nýrra og fjölbreyttari virkjunarkosta sem valda kannski minna raski en vatnsaflsvirkjanir. Ég held að þetta skipti gríðarlegu máli.
Hv. þingmaður nefndi þetta með 5 TWst sem við teljum raunhæft að auka raforkuframleiðslu Íslands um á næstu tíu árum. Það sem við erum kannski að gera með því að setja fram svona tölu er að við erum að einhverju leyti líka að árétta að það sem skiptir máli í þessu samhengi er ekki — það er alltaf talað um einhvern orkuskort og orkuþörf eins og það sé einhver óumflýjanleiki, eins og það sé einhver utanaðkomandi þörf; það er einhver nauðhyggja ríkjandi. Annars vegar eru þeir sem segja: Nú þarf að tvöfalda raforkuframleiðslu, annars fer allt til andskotans — afsakið, forseti. Og hins vegar eru það hinir sem segja: Nei, það verður bara að loka álverum og þá verður allt í góðu hér. En í staðinn fyrir að nálgast þetta út frá einhverjum óumflýjanleika, út frá einhverjum orkuskorti eða orkuþörf, þurfa ríkisstjórnir á hverjum tíma að tala skýrt um það hver þeirra orkuöflunarvilji er. Hvað erum við tilbúin að ráðast í mikla orkuframleiðslu á næstu árum? Það er stóra pólitíska spurningin.