breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni yfirferð hans um þann lögmæta grundvöll sem þarf að vera undir gjaldtöku hins opinbera og tek undir með honum að það vekur ákveðna athygli hvernig umsagnir leggjast í þessu máli. Ég hefði t.d. ekki að óathuguðu máli reiknað með því að Landsvirkjun eða Samtök iðnaðarins lýstu sig fylgjandi aukinni gjaldtöku en þau auðvitað átta sig á því sem hagsmunaaðilar, sem stórir notendur þeirrar þjónustu sem Orkustofnun veitir, að stundum færðu það sem þú borgar fyrir og ef þú borgar lítið þá færðu líka lítið. Orkustofnun er eins og margar aðrar stjórnsýslu- og eftirlitsstofnanir því marki brennd að vera krónískt vanfjármögnuð þannig að þegar koma stór verkefni inn til hennar, segjum ný virkjun eða stórtæk efnistökuáform eða hvaðeina, þá hefur hún einfaldlega ekki mannskap til að sinna þeirri afgreiðslu á sómasamlegum hraða. Þess vegna er ég sammála hv. þingmanni og meiri hluta nefndarinnar að það sé eðlilegt að búa stofnuninni þennan grundvöll.
En mig langar að spyrja varðandi stofnunina að almennt: Það er eitt að tryggja henni þessar sértekjur til að sinna sérstökum verkefnum en þyrfti ekki samhliða því að fara að skoða rekstrargrundvöll stofnunarinnar eins og hann leggur sig? Í dag er það þannig að flest starfsfólk Orkustofnunar er eitt með sinn málaflokk, einn aðili sem sér um malarnám, einn aðili sem sér um vatnsmál. Það segir sig sjálft að þetta er grunnur sem ekki er hægt að byggja mikið á. Þurfum við ekki að styrkja (Forseti hringir.) stofnunina sjálfa, alveg óháð því hvað við gerum með þjónustugjöldin?