154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[23:33]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða fyrirspurn og ég mun gera mitt besta til að svara henni en ég vona að hann fyrirgefi mér ef ég næ ekki alveg að gera grein fyrir öllu því sem hv. þingmaður spyr um. Þessi stofnun sem við ræðum um er afar mikilvæg og má segja að vægi hennar innan stjórnsýslunnar hafi aukist undanfarin ár. Það er rétt að það er sjaldgæft að fyrirtæki kalli eftir aukinni gjaldtöku en það sýnir hversu mikilvægt þetta mál er. Orkustofnun þarf greinilega mjög á að halda meira fjármagni, enda má segja að það sé hálfvandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem vill virkja hraðar og það sé ekki hægt vegna fjársveltis.