breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og ég held að hann hafi hitt naglann á höfuðið. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnilega mjög oft að hengja bakara fyrir smið. Mjög oft er Sjálfstæðisflokkurinn að kenna einhverju utan Sjálfstæðisflokksins um hluti sem flokkurinn sjálfur ber ábyrgð á. Orkustofnun hefur síðastliðinn áratug verið undir stjórn ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Fjármálaráðuneytið hefur mestallan þann tíma verið undir stjórn sama flokks. Það að vera búinn að setja flöskuháls í leyfisveitingaferli þar sem Orkustofnun er, er pólitísk ákvörðun Sjálfstæðisflokksins sem síðan breiðir yfir eigið getuleysi með því að benda á að það þurfi að breyta lögum eða reglum til þess að liðka fyrir leyfisveitingum. En með því heggur flokkurinn gjarnan í þátttökurétt almennings, í það að almenningur geti komið sínum sjónarmiðum að. Þetta langar mig að nefna vegna þess að hv. þingmaður talaði um mikilvægi Árósasáttmálans, mikilvægi þess að sjónarmið almennings eigi greiða leið að ákvarðanatöku stjórnvalda. Þess vegna held ég að það sé bara gott að við höfum fengið þetta frumvarp til umfjöllunar, frumvarp sem er nauðsynlegt til þess að Orkustofnun geti tekið á þeim stóru verkefnum sem eru æ oftar farin að banka upp á hjá henni, einhverjar stórframkvæmdahugmyndir. Það er líka nauðsynlegt vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn hefur bara valið pólitískt að svelta þessa stofnun til að breiða yfir eigin getuleysi í málefnum auðlindanýtingar.