154. löggjafarþing — 119. fundur, 10. júní 2024.
breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
898. mál
Virðulegur forseti. Já, það er rétt hjá hv. þingmanni að það þurfi meira starfsfólk þarna inn og ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er hjartanlega sammála honum um það að Sjálfstæðisflokkurinn hefur algerlega fallið á prófinu þegar kemur að virkjunarmálum, eins og í svo mörgum öðrum málum, það er iðulega byrjað á öfugum enda og sjaldnast endar ferðin annars staðar en úti í skurði.