breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu þar sem hann fór yfir ýmis atriði sem stuðla að óskilvirkni í málsmeðferð leyfisveitinga á vegum Orkustofnunar. En ég staldraði smá við lögspekina hans, sem var reyndar bara rosalega góður punktur varðandi lögmæti slíkra gjalda. En ég ætla svo sem ekkert að spyrja út í það. Hv. þingmaður fór líka út í þær virkjanir sem hafa sætt málsmeðferð á stjórnsýslustigi þar sem reynir á útgáfu ýmissa leyfa. Þar reynir á útgáfu t.d. virkjunarleyfis, þar reynir á útgáfu framkvæmdaleyfis, sem er vissulega ekki gefið út af Orkustofnun, og þar reynir stundum á útgáfu byggingarleyfis. Þar reynir einnig á aðkomu ýmissa stjórnvalda eins og Orkustofnunar, Skipulagsstofnunar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Fiskistofu og svo lengi mætti telja. Það eru alls konar álit sem þarf að afla áður en það verður gefið út leyfi.
Ég var bara að velta fyrir mér hvar hv. þingmaður telur að töfin eigi sér stað í leyfisveitingaferlinu. Er það hjá Orkustofnun við útgáfu virkjunarleyfis, sem er samofið einhverjum álitum frá öðrum stjórnvöldum, eða er það bara vegna leyfisveitingaferlisins sjálfs þar sem það reynir á útgáfu margra leyfa í einu ferli? Ég er bara að reyna að átta mig á því hvar hv. þingmaður stendur í þessu.