154. löggjafarþing — 119. fundur,  10. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[23:44]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Enn og aftur þakka ég hv. þingmanni fyrir hennar andsvör. Ég get nefnt í þessu samhengi vegferð Landsvirkjunar sem tókst að missa af heilum lagabálki, þ.e. lögum um stjórn vatnamála, þegar sótt var um umhverfismat. Minnir mig að það hafi verið flókið jafnvel fyrir sérhæfðar stofnanir að sækja um leyfi á þeirra eigin starfssviði. Svo er annað með kærumálin. Eins og hv. þingmaður segir þá er hægt að kæra þetta allt sem lengir svo ferlið. Ég skil að starfsmenn Landsvirkjunar séu stundum pirraðir yfir þessu, finnst manni. Já, og vandinn núna er kannski að hluta til leyfisveitingaferlið en vandinn er líka flutningskerfið. Og varðandi orkuskortinn sem er yfirvofandi, og það er talað um að það sé skortur á vatni í lónin, það sé til nóg rafmagn o.s.frv. en flutningskerfið sé ekki nógu gott og eitthvað. En þetta virðist þegar upp er staðið vera vegna þess að það er enginn einn sem ber ábyrgð á öllu heila gillinu og kemur þessu bara í lag, sem er náttúrlega málið. Hver ber ábyrgðina?