breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir góða spurningu. Það er vissulega rétt hjá hv. þingmanni, ferlið okkar er vissulega mjög snúið. Eins og hv. þingmaður kom inn á þá erum við með rammaáætlun og síðan tekur við flókið leyfisveitingaferli. Mér finnst rammaáætlun bara vera rosalega góð hugmynd. Þarna erum við að uppfylla skuldbindingar Árósasamningsins þar sem við leyfum aðkomu almennings. En ákvörðun um það hvort virkjunarkostur sé tekinn í nýtingu eða settur í bið eða settur í vernd er tekin með aðkomu sérfræðinga og þingmanna, sem er náttúrlega — maður sér ekki mörg leyfisveitingaferli sem fá aðkomu bæði sérfræðinga og þingmanna. Oftast nær eru þetta bara þingmenn eða bara sérfræðingar, þannig að þetta er bara mjög gott jafnvægi.
Hins vegar tel ég að töfin og óskilvirknin sem á sér stað þegar við tölum um óskilvirkt leyfisveitingaferli og að orkumál séu óskilvirk yfir höfuð, eigi sér stað í leyfisveitingaferlinu af því að það eru aðskilin kerfi og þetta eru mörg mismunandi leyfi. Ég tel að við séum búin að flækja þetta allt of mikið fyrir okkur. Í byrjun ræðu minnar fór ég yfir öll þau lög sem við þurfum að skoða, fara eftir. Það eru ýmis leyfi sem krefjast aðkomu annarra sérfræðinga, annarra stofnana áður en leyfi sjálft er gefið út, eða álit hinna og þessara. Ég er alltaf að tala um þetta en ég tel að við mættum kannski bara taka Evrópusambandið okkur til fyrirmyndar. Þau voru að samþykkja breytingu á uppfærðri tilskipun, með leyfi forseta, „Renewable Energy Directive“ þar sem settur er hámarkstími á leyfisveitingaferli orkumannvirkja sem eru innan einhverra ákveðinna svæða. Ég tel að það væri til bóta í þessum málaflokki og vonandi einnig varðandi framboðsskort raforku ef það yrði settur hámarkstími leyfisveitinga fyrir þá orkukosti sem eru nú þegar komnir í nýtingarflokk rammaáætlunar.