breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir góða spurningu enn og aftur. Það sem blasir við akkúrat núna er að við erum með raforkumarkað og sölu á raforku í samkeppnisumhverfi og erum þar af leiðandi bundin af samkeppnislögum. Þegar kemur að því að endurnýja samninga við stórnotendur eða ekki þá er núverandi lagaumhverfi þannig að það er ekki hægt að skikka fyrirtæki sem starfa á samkeppnismarkaði og geta selt orkuna sína til hæstbjóðanda til að taka ekki við einhverjum tilteknum samningum þegar samkeppnislagaumhverfið er þannig. Hins vegar er stefna Pírata þannig að við teljum að það þurfi að gera raunhæfa áætlun um orkuþörf til framtíðar og það þurfi að hverfa frá ósjálfbærri stóriðjustefnu. Það þarf vissulega að forgangsraða smærri notendum og það þarf að nýta orkuna til að byggja upp græna nýsköpun. Hvað varðar forgangsröðun þá þarf að setja lög sem heimila slíka forgangsröðun. Akkúrat núna, í núverandi lagaumhverfi sem er stjórnað af — ég ætla nú ekki að fara út það — ja, er stjórnað af markaðshvötum, þá myndi þessi forgangsröðun smærri notenda mögulega teljast mismunun. Það þarf að setja á fót lagaákvæði þar sem við lögfestum orkuskiptin, við lögfestum tímaramma fyrir orkuskiptin, við lögfestum heimild til að forgangsraða orku og meira að segja að afgangsorka fari í orkuskiptin því að samkvæmt núverandi lögum og núverandi lagaumhverfi þá fer afgangsorkan til hæstbjóðanda. Lögin skikka ekki þessa afgangsorku sem er til staðar til að fara í orkuskiptin eða græna uppbyggingu eða nýsköpun. (Forseti hringir.) Það er einn af þeim hlutum sem Píratar vilja horfa til.