154. löggjafarþing — 119. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[00:15]
Horfa

Katrín Sif Árnadóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Lenyu Rún Taha Karim fyrir ræðuna. Nýlega kom fram tilkynning umboðsmanns Alþingis um töf á málsmeðferð við töku stjórnvaldsákvörðunar hjá Orkustofnun og að hún hafi brotið m.a. málshraðareglur stjórnsýslulaga. Ég vil ekki sérstaklega vera að rakka niður þá forgangsröðun sem hefur átt sér stað hjá stofnuninni, ég nefni þetta því að það eru áform umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um sameiningu ýmissa stofnana. Þar á meðal er lagt til að stofnun verði sett á laggirnar þar sem um er að ræða samruna Orkustofnunar og þess hluta Umhverfisstofnunar sem lýtur að stjórnsýslustarfsemi stofnunarinnar í umhverfis- og loftslagsmálum, einkum eftirliti og framkvæmd tiltekinna laga. Með hliðsjón af þessum málstöfum og reynslunni af starfsemi Orkustofnunar við leyfisveitingar vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann telji slíkan samruna vera jákvætt skref með hliðsjón af almennum sjónarmiðum og þess sem samruni vinnustaða getur leitt til, t.d. að það geti tekið lengri tíma fyrir hina nýju stofnun að koma þessu í lag.