154. löggjafarþing — 119. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[00:16]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Hvað varðar skilvirkni eða óskilvirkni sem fylgir því að sameina slíkar stofnanir sem eru með jafn umfangsmikil hlutverk og Orkustofnun er nú þegar með, þá velti ég því bara fyrir mér hvernig framkvæmdin á þessu á að vera. Fylgir fjármagn með þessari sameiningu? Fylgja fleiri stöðugildi þessari sameiningu? Við erum á þeim stað þar sem afgreiðsla eins leyfis, eins og hv. þingmaður kom inn á, tók 18 mánuði og umboðsmaður Alþingis hefur gert athugasemd við málsmeðferðartíma Orkustofnunar, sem maður skilur auðvitað að einhverju leyti vegna manneklunnar sem er þar og forgangsröðun stjórnvalda þegar kemur að fjárveitingum til Orkustofnunar. En mun þetta halda áfram að eiga sér stað hjá Umhverfis- og loftslagsstofnun, minnir mig að ný stofnun eigi að vera kölluð, mun fylgja fjármagn eða á kannski að sameina leyfin? Ég held að það séu ýmsar leiðir til þess að útfæra það þannig að það verði skilvirkt leyfisveitingaferli eftir þessa stofnanasameiningu, en ég held að það sé bara ekki metnaður fyrir því hjá þessari ríkisstjórn. Ég held að ein leið væri einmitt að passa að fjármagn fylgdi með þessari stofnanasameiningu en jafnframt er þetta líka kjörið tækifæri til að endurskoða leyfisveitingaferlið í heild sinni og mögulega að samræma þessi leyfi sem eru svo ótrúlega mörg og krefjast aðkomu svo ógeðslega margra stofnana, sem leiðir til enn þá frekari tafa. Ég vonast bara til þess að það verði raunin en miðað við hve málin ganga hægt hjá þessarar ríkisstjórn þá efast ég stórlega um að það verði að veruleika. En maður má nú alltaf vona.