154. löggjafarþing — 119. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[00:18]
Horfa

Katrín Sif Árnadóttir (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í mínu seinna andsvari langar mig að spyrja hv. þingmann einlægrar spurningar og mig langar ótrúlega mikið að fá einlægt svar: Er orkuskortur raunveruleg staða á Íslandi í dag? Búmm.