154. löggjafarþing — 119. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[00:43]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég held að það sé algengt vandamál í íslenskri stjórnsýslu að þættir eins og eftirlit sé vanfjármagnað. En það er auðvitað eðlilegt í okkar kerfi að þeir aðilar sem lúta eftirlitinu beri — ég ætla kannski ekki endilega að fullyrða að það sé „gjarnan eðlilegt“ í öllum tilvikum, ég segi bara: með öllum venjulegum fyrirvörum, eins og við lögfræðingarnir segjum um flest sem við látum út úr okkur; að besta leiðin til að fjármagna sé í rauninni að láta þann aðila sem er undir eftirliti standa straum af kostnaðinum. Það þarf hins vegar að gera með réttum hætti, eins og ég fór, að ég held, ágætlega yfir í minni ræðu og er farið ágætlega yfir í greinargerð og umsögnum sem hafa borist um þetta mál, að þetta þarf að gera með réttum hætti. Það skiptir mjög miklu máli til þess að þetta sé allt bara lögum samkvæmt og í samræmi við, eins og ég nefndi hér áðan, stjórnarskrána og annað. Það sem t.d. er gagnrýnt eða goldið varhug við í umsögn Samtaka iðnaðarins, sem ég nefndi hér rétt áðan, er þegar stjórnvöld fara út fyrir þær heimildir sem þau hafa og eru í raun að rukka borgarana beint fyrir eitthvað sem samkvæmt okkar kerfi og samkvæmt okkar lögum ætti að felast í almennri fjármögnun stofnunarinnar. Ég held að þetta sé viðvarandi vandamál. Kannski hafa ákveðnir stjórnmálaflokkar minni áhuga á að setja peninga í hluti á borð við eftirlit en aðrir og ég held að það geti komið niður á verkefnum. Ég held að þetta geti komið niður á eftirliti (Forseti hringir.) sem auðvitað kemur niður á því að tilteknar stofnanir geti sinnt sínu hlutverki. Það er nefnilega ekkert nóg (Forseti hringir.) að setja á fót einhverja stofnun sem á að hafa eitthvert hlutverk; ef hún hefur ekki fjármuni til að sinna því þá gerir hún það vitanlega ekki vel.