154. löggjafarþing — 119. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[00:45]
Horfa

Katrín Sif Árnadóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að búist sé við að umrædd gjaldtaka muni ekki fjármagna að fullu þann kostnað sem hlýst af vinnu við leyfisveitingar innan stofnunarinnar en að gjaldtaka muni skila sér í möguleikum til að bæta þjónustu stofnunarinnar með því að geta brugðist við álagspunktum í leyfisveitingu með auknu vinnuframlagi eða utanaðkomandi þjónustu. Enn fremur kemur fram að tekjur Orkustofnunar vegna þessara breytinga muni gróft áætlað vera á bilinu 6–13 millj. kr. á ársgrundvelli, sem er alls ekki há upphæð miðað við þá hagsmuni sem eru í húfi að mínu mati. Vissulega er jákvætt að fara þá leið sem farin er í frumvarpinu en gjaldtaka af þessu tagi er að mörgu leyti gagnsærra ferli. En hefði ekki verið betra að grípa til harðari fjármögnunar?