154. löggjafarþing — 119. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[00:53]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil spyrja hv. þingmann út í það hvort hún telji að þau leyfisveitingaferli sem þarf að fara í gegnum til að fá virkjunarleyfi séu hugsanlega of flókin. Fyrir virkjun á borð við Hvammsvirkjun — það þarf að fá hana í nýtingarflokk rammaáætlunar. Þá þarf að fá framkvæmdaleyfi. Það þarf að fara í gegnum umhverfismat. Það þarf að gera breytingar á skipulagi og svo þarf auðvitað að fá virkjunarleyfi. En allt er þetta kæranlegt og að þessu loknu þarf að bjóða byggingarframkvæmdirnar út. Það útboð er svo að sjálfsögðu einnig kæranlegt. Er þetta ekki aðeins of flókið ferli? Ég bara spyr.