breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Forseti. Jú, eins og hv. þingmaður stillti því upp hljómar þetta dálítið þungt í vöfum og möguleg þyngra í vöfum en það þarf að vera. Ég treysti mér kannski ekki alveg til að taka beina afstöðu til spurningar hv. þingmanns hvað það varðar akkúrat hér. Ég held hins vegar að ef vilji væri fyrir hendi og ef við færum raunverulega í þessa stefnumörkun væri vel hægt að finna fjölmargar leiðir til að straumlínulaga stjórnsýsluna sem er allra hagur og um leið kannski finna leiðir til að fjármagna betur það sem við erum öll sammála um að þurfi að fjármagna.