154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Botninum líklega ekki náð, sagði höfundur nýrrar skýrslu um stöðu drengja í skólakerfinu. Tryggvi Hjaltason segir það hafa verið erfitt að sjá að allar skólarannsóknir sem gerðar hafa verið beri að sama brunni, síðasta mælingin sé alltaf sú versta og botninum sennilega ekki náð. Drengir standa sig mun verr í námi en drengir í nágrannalöndum okkar. Brottfall drengja úr framhaldsskóla er mest hérlendis í samanburði við Vesturlönd og minnstar líkur á að drengir ljúki framhaldsnámi. Skýrslan ber með sér að stjórnvöld hafa brugðist drengjum og brugðist kennurum. Kennarar fá ekki nauðsynlegan stuðning í starfi. Þessi nýjasta skýrsla dregur fram sömu alvarlegu stöðu og síðasta PISA-mæling. Þar kom fram að 40% 15 ára barna á Íslandi geta ekki lesið sér til gagns. Ísland skrapar botninn í alþjóðlegum samanburði þar. Skólinn á að vera besta jöfnunartæki samfélagsins en til að það geti orðið þurfa kennarar að fá rými til að gera það sem þeir gera best, sem er að kenna. Í nýlegum heimsóknum Viðreisnar í grunnskóla og framhaldsskóla fundum við vel þann mikla metnað sem einkennir kennara. Þetta hugsjónafólk á skilið að fá að verja kröftum sínum við að kenna við betri aðstæður. Brottfall nýrra kennara úr starfi er töluvert og speglar auðvitað hversu erfitt starfsumhverfið er. Við þekkjum flest kennara sem breytt hafa lífi okkar. Kennarar og börnin okkar eiga skilið að nú sé brugðist við með markvissum aðgerðum, kennarar fái rými til að vera kennarar og fái að halda áfram að breyta lífi barna til góðs. Það á að setja kraft í gerð námsefnis, það á að minnka bekki og auðvitað hefur það áhrif að (Forseti hringir.) samræmdar mælingar skortir. Mælingar eru stuðningstæki fyrir börn og þær á ekki að hræðast. (Forseti hringir.) Það er stjórnvalda að tryggja að skólarnir geti (Forseti hringir.) gegnt því hlutverki sínu að auka tækifæri barna.