154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Forseti. Ég hlustaði í gær á viðtal við dr. Erlu Björnsdóttur sem vakti athygli á svefnlyfjanotkun Íslendinga. Við eigum auðvitað mjög mörg vafasöm met í þessum efnum. Til að mynda erum við heimsmeistarar þegar kemur að því að taka inn geðlyf og ég held að þetta sé eitthvað sem við ættum að staldra aðeins við og hugsa: Hvers vegna er þetta staðan? Hvers vegna skerum við okkur úr þegar kemur að þessari miklu lyfjanotkun? Það er auðvitað svo að samkvæmt landlækni þá eru klínískar leiðbeiningar þær að samtalsmeðferð á að vera fyrsta stopp. En það sem blasir við fólki er auðvitað það að ef þú ætlar að leita hjálpar þá bíða þín annaðhvort biðlistar hjá opinbera kerfinu eða þá að kostnaður við að leita sér hjálpar er alveg gríðarlegur. Ég er að heyra dæmi um að einn tími hjá sálfræðingi séu sirka 25.000 kr. og það er ekki fyrir hvern sem er að verða sér úti um svoleiðis hjálp. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við stöldrum aðeins við þessa stöðu vegna þess að það að taka lyf getur auðvitað hjálpað en það er ekki langtímalausn. Það er undir okkur komið að búa svo um hnútana að fólk geti hér fundið hjálp og geti fengið þá aðstoð sem þau þurfa. Ég vil minna þingheim á það að árið 2020 samþykktu allir þingmenn í þessum sal frumvarp okkar í Viðreisn um að niðurgreiða hér sálfræðiþjónustu eða aðra gagnreynda klíníska meðferð. Hver einasti þingmaður ýtti á græna takkann. En hvað gerðist? Frumvarp var vissulega samþykkt en það hefur enn þá ekki verið fjármagnað. Það er ótrúlega kostnaðarsamt fyrir samfélagið okkar að halda fólki í einhvers konar spennitreyju þegar kemur að því að leita sér hjálpar. Þessu verðum við að breyta. (ÞKG: Heyr, heyr.)