forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.
Virðulegur forseti. Fjölmörg samtök, stofnanir og einstaklingar hafa vakið máls á þeirri vegferð sem Sjálfstæðisflokkurinn hóf fyrir mörgum árum; að fá vín í búðir. Má þar nefna samtökin Fræðsla og forvarnir, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum og ýmsar breiðfylkingar forvarnasamtaka sem hafa unnið gott starf á málefnalegum og faglegum grunni til að halda lýðheilsusjónarmiðum varðandi áfengissölu á lofti. Það hefur verið hlustað á þau, skoðanir þeirra og rök tekin til greina, kollum kinkað og spurningum svarað. En svo endum við alltaf á sama stað, að þetta sé á gráu svæði lagalega, að aukið aðgengi þýði nú ekkert endilega aukna neyslu. En lögin eru skýr: Það má ekki selja áfengi í almennum verslunum, hvort sem það er í Bónus eða á netinu. Það er bannað með lögum. Það er ekkert vafamál. Það er ekki grátt svæði. Það er ekki opið fyrir túlkunum. Það er bara bannað. Þrátt fyrir það bjóða tugir fyrirtækja upp á netsölu á áfengi á Íslandi í dag.
Við búum svo vel í okkar ríkisstjórn að eiga fjölda ráðherra sem hafa opinberlega vakið máls á mikilvægi lýðheilsu og haldið þeim sjónarmiðum á lofti. Ber þar vissulega fyrst að nefna hæstv. heilbrigðisráðherra, enda málið honum skylt. Hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, matvælaráðherra og fjármálaráðherra hafa sömuleiðis tjáð þessa skoðun sína og þá sérstaklega hvað varðar netsölu á áfengi. Hæstv. fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, sagði í útvarpsviðtali á Bylgjunni á dögunum, með leyfi forseta, að hann teldi netsöluna að öllum líkindum fara á svig við lög. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur lagt lýðheilsusjónarmið til grundvallar allri umræðu um breytingar á áfengislöggjöfinni.
Netsala á áfengi stóreykur neyslu þess. Um það er fjöldi rannsókna samhljóða. Um miðjan september í fyrra bárust fregnir af því að áfengisneysla Íslendinga hafi tvöfaldast á síðustu áratugum, og þetta á ekki bara við um fullorðna Íslendinga heldur ná tölurnar yfir börn frá 15 ára aldri. Á sama tíma og fræðsla hefur aukist, mikilvægi forvarnastarfs orðið viðurkennt og unglingadrykkja hætt að vera samfélagslegt norm hefur eitt gerst: Framboð á áfengi hefur margfaldast. Og hvað gerist þegar áfengisneysla eykst? Hvað gerist þegar þeim fjölgar sem drekka áfengi? Þeim fjölgar þá sömuleiðis sem þurfa aðstoð vegna neyslu sinnar á þessu vinsælasta og viðurkennda fíkniefni sem mannskepnan hefur fundið upp. Fjöldi þeirra skjólstæðinga SÁÁ sem drekkur daglega hefur meira en þrefaldast á síðustu áratugum svo það má sannarlega spyrja sig hvort þörf sé á að auka enn á aðgengi að áfengi.
Mig langar því að velta upp eftirfarandi spurningum og vangaveltum: Áfengi er meðal fjögurra algengustu áhættuþátta fyrir langvinnum sjúkdómum og má þar nefna ýmsar tegundir krabbameina, sykursýki, hjartasjúkdóma, skorpulifur og heilablóðfall. Fjölmargar alþjóðlegar rannsóknir sýna að aukið aðgengi að áfengi hefur í för með sér meiri notkun þess sem leiðir til aukinna heilbrigðis- og félagslegra vandamála með tilheyrandi kostnaði og þjáningu fyrir samfélagið. Hvaða áhrif telur hæstv. ráðherra í ljósi þessara upplýsinga að netsala áfengis hafi á lýðheilsu Íslendinga?
Nú hafa fjölmörg félög heilbrigðisstétta, Krabbameinsfélagið, Félag hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands og landlæknir, auk fagaðila í áfengismeðferð, sent frá sér ályktanir þar sem þau lýsa yfir áhyggjum af netsölu með áfengi. Hvernig hyggst ráðherra bregðast við þessum áhyggjum þessa fagfólks sem helst hefur með áfengisvandann að gera?
Í stjórnarsáttmála segir að stjórnvöld hafi lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlunargerð og stefnumótun. Er ráðherra reiðubúinn til að grípa í taumana varðandi sölu áfengis í ljósi þess lýðheilsuskaða sem fagfélög í heilbrigðiskerfinu hafa lýst rökstuddum áhyggjum af að muni verða ef slík viðskipti eru látin óáreitt?
Svo ég geri orð Láru Sigurðardóttur, læknis á Vogi, að mínum, með leyfi forseta:
„Ríkiseinokun er í raun það form af sölufyrirkomulagi sem hefur mesta forvarnagildið fyrir þjóðir og við höfum gert vel hingað til …“
Þau eru ekki mörg sem munu græða á því að vín komist í búðir en þau eru einhver og hin, langstærsti hlutinn, mun tapa.