154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.

[14:18]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda, hv. þm. Jódísi Skúladóttur fyrir framsögu sína og frábæra ræðu um málið, ég tek heils hugar undir allt sem hún sagði þar. Áfengislög eru mikilvægustu lýðheilsulög landsins, mikilvægustu lýðheilsulög þjóðarinnar. Takmörkun á aðgengi er besta forvarnaaðgerðir gegn áfengisneyslu. Langbesta og áhrifaríkasta aðgerðin. Áfengislög í dag eru mjög skýr. Ríkið er með einkasölu á smásölu á áfengi. Það stendur í 10. gr. Það er líka bannað að auglýsa áfengi og áfengissölur. Þessi lög er verið að brjóta á hverjum einasta degi og búið er að gera undanfarin þrjú, fjögur ár án þess að löggæsluyfirvöld og ríkissaksóknari, handhafi ákæruvalds í landinu, geri nokkurn skapaðan hlut í málinu. Þessi aðilar, löggæsluyfirvöld í landinu, ríkissaksóknari og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, bera ábyrgð á því að það er ekki verið að framfylgja þessum mikilvægustu lýðheilsulögum í landinu, áfengislögum. Það eru þungar refsingar við brotum á áfengislögum. Sex ára fangelsi, upptaka alls ágóða og það er brot varðandi peningaþvætti líka, þ.e. meðferð á fé þar sem er hagnaður á bak við. Stór hluti þessara netverslana er skráður á Íslandi en það skiptir engu máli. Netsala á áfengi er smásala á áfengi og það að ríkisstjórnin, ráðherrar í ríkisstjórninni og dómsmálaráðherra landsins, sem samkvæmt forsetaúrskurði fer með ábyrgð á málaflokknum og fer með ábyrgð á löggæslu og ákæruvaldi í landinu, skuli ekki beita eftirlitsvaldi sínu og spyrja ríkissaksóknara að því af hverju ekki er verið að framfylgja þessum mikilvægustu lýðheilsulögum landsins er algjört hneyksli. Algjört hneyksli að þau skuli ekki hafa myndugleika til þess að gegna embættisskyldum hvað það varðar. Ég skora líka á ríkissaksóknara í landinu að svara fyrir það, (Forseti hringir.) fyrir þjóðinni, af hverju er ekki verið að framfylgja lögunum eða segja af sér. Þetta er algjört — þetta er svo mikið ábyrgðarleysi (Forseti hringir.) að það er algerlega hreint með ólíkindum.