forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.
Forseti. Ég virðist óvart hafa stigið inn í tímavél til ársins 1988 þegar bjórbannið var rætt hér. Forvarnir gegn vímuefnaneyslu barna og ungmenna hafa hvergi náð jafn miklum árangri og á Íslandi. Það er óumdeilt og ánægjulegt. Að gefa sér hins vegar þá forsendu að það að forvarnir hafi gengið vel sé að öllu leyti einokunarsölu ríkisins að þakka er auðvitað móðgun við alla þá fjölmörgu aðila sem koma að þessu samhentu átaki, að ná árangri í að draga úr vímuefnaneyslu ungmenna. Flest rök gegn netverslun áfengis eru í eðli sínu rök gegn áfengisneyslu og varða því ekki netsölu umfram aðra sölu áfengis. Samt sem áður hafa sömu þingmenn og eru mjög andvígir þessari tegund af sölu ekki lagt fram tillögur til að takmarka umsvif einokunarverslun ríkisins. Það er þrátt fyrir að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hafi sjálf aukið aðgengi að áfengi með fjölgun sölustaða, margföldun á vöruúrvali og lengingu opnunartíma og já, jafnvel opnað netverslun með áfengi án viðbragða frá Alþingi.
Ég vil vitna í orð hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra, Geirs H. Haardes, í umræðu um afnám bjórbannsins 1988, með leyfi forseta:
„Lögin um bjórbann eru nefnilega orðin tóm gagnvart fjölda Íslendinga, dauður bókstafur fyrir hvern þann sem á annað borð er reiðubúinn að bera sig eftir því að verða sér úti um bjór og er tilbúinn að borga fyrir hann það verð sem upp er sett.“
Þessi orð má heimfæra á þær aðstæður sem nú eru uppi. Samfélagið hefur markað stefnuna en hér vilja sumir ríghalda í löngu liðinn tíma sem á fátt skylt við veruleikann sem við búum við í dag. Hér er fólki tíðrætt um staðreyndir. Það er staðreynd að á meðan neysla íslenskra ungmenna á áfengi hefur farið minnkandi hefur aðgengi snaraukist. Skýrt lagaumhverfi utan um sölu áfengis getur náð sömu lýðheilsumarkmiðum og sumir stjórnmálamenn telja að náist einungis (Forseti hringir.) með ríkiseinokun. Ríkiseinokun er ekki forsenda lýðheilsu. Nú er tími til að vakna. Árið er 2024.