forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.
Forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra og hv. þm. Jódísi Skúladóttur fyrir þessa ágætu umræðu um forvarnir og lýðheilsu þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi. Ég verð þó að viðurkenna að ég staldraði aðeins við þegar ég hjó eftir því að þessari umræðu er stillt upp sem einhvers konar andstöðu mögulega við málflutning Sjálfstæðismanna um netsölu áfengis. En það kemur svo sem ekkert á óvart að það sé ágreiningur innan ríkisstjórnarinnar um þetta mál, enda er vandfundið það mál sem þau kannski eru sammála um þessa dagana.
Forseti. Það er margt hættulegt í mannheimum. Við neytum óhollra matvæla og við innbyrðum óholla hluti alla daga. En við í Viðreisn erum svona frekar hrifnari af því að treysta fólki og stuðla að frelsi þess til athafna með ábyrgð. Við trúum ekki á einokun ríkisins á smásölumarkaði, enda sjáum við alveg hver þróunin hefur verið; fólk sem ætlar að kaupa sér áfengi finnur leið til þess að kaupa áfengi, og ég held að einokun ríkisins í þeim efnum breyti engu þar um, því miður. Auðvitað eigum við að tryggja lýðheilsu og forvarnir og vera meðvituð um skaðsemi áfengis og það er ríkisstjórnarinnar að tryggja skýran lagaramma um alla þessa þætti. Það er auðvitað ótækt að ekki sé verið að framfylgja lögum í landinu. Það er samt ákveðin óvissa um hvort það sé einhver lagaleg óvissa eða ekki og mér skilst að það sé verið að reyna að finna út úr því. En ég mæli bara innilega með því að stjórnarflokkarnir fundi, horfist í augu og finni kannski einhverja lausn á þessu máli því að það er öllum fyrir bestu að leyst verði úr einhverri lagatæknilegri flækju sé hún til staðar. Að því sögðu þá held ég að það séu fáir þingflokkar sem eru jafn edrú og þingflokkur Viðreisnar og þess vegna er það ekki þannig að þetta sé eitthvert hagsmunamál okkar. Við erum öll góðtemplarar, eða flest. En ég held að það sé mikilvægt (Forseti hringir.) að hafa í huga að við tölum fyrir frelsi með ábyrgð.