154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.

[14:33]
Horfa

Guðný Birna Guðmundsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp í fullkominni einlægni til að varpa fram vangaveltum mínum. Í áfengislögum, nr. 75/1998, segir í 10. gr.: „Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur einkaleyfi til smásölu áfengis.“ Því hef ég verið hugsi varðandi það að netverslun áfengis hafi komið fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum þar sem sala með áfengi hefur færst í vöxt og þó nokkrir aðilar bjóða upp á þann valkost. En þá er spurningin: Má það? Þetta er gert í dag með því að byggja á einni af meginstoðum EES-samningsins, þ.e. frjálsum vöruflutningum milli landa innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þannig starfa verslanir í skjóli samningsins í löndum utan Íslands en innan svæðisins geta þær selt áfengi í netverslun þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins á smásölu í gegnum ÁTVR. Vegna einkaleyfisins mega netverslanir ekki verið skráðar hér á landi. Netverslanir geta því aðeins selt áfengi með því að stofna erlenda netverslun. En hvað telst vera erlend verslun til að mynda ef lagerinn er hérlendis? Það er auðvitað óheppilegt að það sé ekki samhljómur um hvað telst löglegt á Íslandi. Löggjafinn verður að hafa stjórn á lögunum og þeim getur ekki verið stýrt áfram af rekstraraðilum. Ef við viljum endurskoða regluverkið þá gerum við það hér í þessum sal. Ef við teljum að löggjöfin sé úrelt eða ekki lengur framkvæmanleg þá þarf að breyta því hér. Annaðhvort heimilum við netsölu áfengis eða hreinlega ekki. Það er ekkert til, herra forseti, sem heitir lagalegt tómarúm. Annaðhvort eru til lög um hlutina eða bara alls ekki.