154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.

[14:35]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf):

Virðulegi forseti. Hér er umræðan um áfengi. Áfengi er engin venjuleg neysluvara. Áfengi er eitur sem hefur neikvæð áhrif á heilbrigði einstaklinga, fjölskyldna og samfélagsins í heild. Það er einhvers konar lögmál að af þeim sem neyta áfengis og vímuefna almennt, svona í hófi sem kallað er, verða 15–20% háðir þessu og verða fíklar. Þeim mun fleiri sem neyta þess í hófi, þeim mun fleiri verða fíklarnir. Þetta er bara staðreynd sem ekkert er hægt að breyta. Sá sem stendur hérna byrjaði að drekka þegar hann var 13 ára og það er ekki til eftirbreytni. En ég sé það að í kringum mig er ungt fólk sem er ekki byrjað að drekka og það kannski orðið 16 og 17 ára, þannig að eitthvað hefur áunnist í gegnum tíðina. En með auknu aðgengi eykst sjúkdómsbyrði og dánartíðni sem er á ábyrgð þeirra sem tala máli áfengisiðnaðarins. Sú þróun sem hefur átt sér stað undanfarin ár er því mikið áhyggjuefni. Fyrirtæki selja áfengi í smásölu en klæða söluna í búning fjarsölu yfir landamæri. Þetta er lögbrot fyrir opnum tjöldum en lögregluyfirvöld og handhafar saksóknaravalds aðhafast ekkert. Og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins vilja helst bara leyfa einkasölu alfarið þó að þeir fari þá krókaleið að segjast bara vilja leyfi í netsölu. Þess má geta að í Danmörku er áfengi selt á hverju horni. Í Danmörku er mikil drykkja, ég hef orðið vitni að því sjálfur. Það er rökleysa að segja að aukið aðgengi að áfengi leiði bara til aukins samfélagsskaða af völdum áfengis. Ég hef stundum gert grín að því að í útvarpinu, sem ég hlusta gjarnan á, er auglýst alveg hægri, vinstri frá hinum ýmsu stöðum sem selja nánast bara áfengi: Opnum 12 á hádegi, (Forseti hringir.) opnum 11 fyrir hádegi. Hvað er fólk að gera inni á bar kl. 12 eða 11 fyrir hádegi (Forseti hringir.) annað en að drekka? Og hverjir drekka um miðjan dag aðrir en þeir sem eru orðnir háðir því?