154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.

[14:37]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Frelsið er yndislegt en það er ekki mælt í aðgengi að brennivíni þó að margir haldi að við mælum frelsi þannig. Ég tel mér sem þingmanni það algerlega skylt að vernda þá sem eiga erfitt með að höndla neysluna. Aukið aðgengi kostar lýðheilsuvandamál sem hér hafa verið margnefnd. Heimsending brennivíns er eins konar nútímasprúttsala eins og hún er framkvæmd. Menn hringja bara á bíl og það er komið eftir hálftíma upp í rúm til fólks. Það þarf ekki einu sinni að klæða sig til að sækja þetta. Það er náttúrlega orðið afbökun á versta hátt hvernig er farið með þessa heimsendingu. Sendibílar í nágrannabyggðum hér eru fullir af brennivíni að keyra heim til fólks alla daga vikunnar, aðallega til eldri borgara sem sitja heima og drekka sig fulla á hverjum einasta degi. Þau eru orðnir langstærsta vandamál SÁÁ, eldra fólk sem situr eitt heima og drekkur og fær vínið sent heim á hverjum degi með sendibílum af því að það vill ekki fara sjálft í ríkið. Þetta er það sem við erum að bjóða upp á. Þetta var auðvitað aldrei meiningin, held ég. Þess vegna stend ég heils hugar með ráðherranum þegar hann vill spyrna við fótum í því hvernig þessum málum er fyrir komið í dag. Það er engin mynd á því. Ég stend líka með þeim veiku sem þola ekki svona þjónustu, og við ætluðum heldur aldrei að hafa hana svona. Við þurfum að hjálpa fólki að bera ábyrgð á eigin heilsu og við þurfum að leggja meiri pening í úrræði fyrir þetta fólk. Þau sem kalla eftir meira frelsi á markaðnum verða þá að vera tilbúin til þess að skrúfa fyrir kranann hinum megin með því að láta meira fé í það. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)