154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.

[14:40]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Ég held áfram þar sem frá var horfið í minni fyrri ræðu. Þar nefndi ég t.d. að það hafi komið mér á óvart þegar ég komst að því að í helstu fíknimeðferðum sem í boði eru í íslensku heilbrigðiskerfi er ekki innbyggður aðgangur að áfallameðferð. Fjölbreytni úrræða á Íslandi er ekki næg. Það er margt gott starf unnið en það hentar ekki alltaf það sama öllum. Við þurfum ávallt að hafa það í huga að ráðast þarf að rót vandans og það er brýn þörf fyrir fjölbreyttari úrræði fyrir fólk sem glímir við fíknivanda hvers konar. Þau úrræði þurfa að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur, geta gripið hann þegar tækifæri gefst og síðast en ekki síst þarf að ráðast að rótum vandans.

Forseti. Hér erum við að ræða forvarnir og heilbrigðisvinkilinn á áfengisneyslu landsmanna. Ég tel hins vegar brýnt að koma því að í þessari umræðu þar sem við erum líka að ræða æskilega löggjöf til þess að freista þess að stýra hegðun landsmanna, einstaklingunum sjálfum og samfélaginu öllu til heilla vonandi, að það skiptir máli hvernig löggjöf er hagað til þess að hún þjóni tilgangi sínum og uppfylli skilyrði þeirrar grundvallarhugmyndafræði sem við byggjum allt okkar samfélag á, réttarríkið. Til þess að geta uppfyllt þann tilgang að hafa áhrif á hegðun fólks þurfa lög að vera gædd ákveðnum eiginleikum. Þau þurfa að vera framvirk, aðgengileg og skýr. Við búum hins vegar við ríkisstjórn sem vegna pólitísks hugleysis, ég veit ekki hvað annað á að kalla það, nýtir krókaleiðir og óskýrleika laga til að gera breytingar á okkar regluverki í gegnum framkvæmdarvaldið í stað þess að það fari í gegnum þá lýðræðislegu umræðu hér á þingi sem rétt er að fari fram. Skýrt dæmi hvað þetta varðar er framkvæmd þessarar ríkisstjórnar þegar kemur að banni við hvalveiðum þar sem hefur verið farið í lítt árangursríkar tilraunir hjá framkvæmdarvaldinu til að ná fram pólitískum vilja sem ekki er (Forseti hringir.) dugur til að koma með inn á Alþingi Íslendinga þar sem sú umræða og þær ákvarðanir eiga heima. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til þess að treysta Alþingi (Forseti hringir.) til að taka umræðuna og til þess að taka ákvarðanir í kjölfarið í þágu þjóðar.