forvarnir og lýðheilsa þegar horft er til aukins aðgengis að áfengi.
Herra forseti. Þetta er þörf og góð umræða og hún er auðvitað bara að staðfesta það sem við vissum fyrir: Áfengismálin, netsala, aðgengi, lýðheilsa, allt þetta er á sjálfstýringu vegna þess að flokkarnir sem stýra landinu tala í austur og vestur í þessum mikilvægu málaflokkum. Það höfum við séð mjög skýrt á umræðunni hérna í dag. Það er verið að fullyrða að netsala með áfengi sé ólögmæt en það er líka verið að fullyrða að netsala með áfengi sé lögmæt. Hún er það þannig að nákvæmlega þetta álitaefni er til umfjöllunar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Í því samhengi vekur athygli að hæstv. dómsmálaráðherra er að tala með allt öðrum hætti heldur en til að mynda hæstv. heilbrigðisráðherra talaði hér og vísaði til þess að hann hefði komið erindi til hæstv. fjármálaráðherra, sem er líka í Framsóknarflokknum og á þá að taka þetta mál eitthvað áfram.
Við erum að tala um aðgengi og ÁTVR. Ég get ekki endilega séð samasemmerki á milli þess að lýðheilsusjónarmið séu best tryggð með því að vera með ÁTVR. ÁTVR er með meira en 50 sölustaði um allt land. Það er opið á laugardögum. Það hefur verið lagt til af fimm þingmönnum Framsóknarflokksins að það megi líka að vera opið á sunnudögum og öðrum frídögum. Ég efast ekki eina mínútu um það að þessir þingmenn Framsóknarflokksins vilji efla lýðheilsu, að þeir tali fyrir lýðheilsumarkmiðum. Ég er bara að segja að okkur hættir svolítið til í þessari umræðu að ofureinfalda allar lausnir. Þegar kemur að aðgengi þá langar mig að minna okkur öll á það að íslenska ríkið hefur búið svo um hnútana með lögum að það er ekki, það á ekki að vera neitt aðgengi að ólöglegum vímugjöfum. Við bönnum það ofureinfaldlega. Samt er staðreyndin sú að fyrir börn og ungmenni er auðveldast af öllu að nálgast ólöglega vímugjafa. Ég er bara að nefna þetta hérna vegna þess að við erum öll að ofureinfalda umræðuna. Þetta er flókið álitaefni sem kallar á svolítið góða skoðun í þessum þingsal. Það er auðvitað ekki gott veganesti inn í þá skoðun (Forseti hringir.) að stjórnarmeirihlutinn skuli vera svona rækilega ósammála um þetta.
Ég ætla líka að leyfa mér að halda því fram að við getum ekki stillt fram þannig með rökum (Forseti hringir.) að önnur hliðin á þessu máli sé þess eðlis að þá séu menn að tala gegn lýðheilsu en hin hliðin sé þannig að þar séu menn háheilagir varðandi lýðheilsu. (Forseti hringir.) Svo einfalt er þetta ekki.