154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[15:10]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, margt áhugavert sem þar kom fram. Mig langar kannski að fara í aðeins aðra átt en hv. þingmaður fór í sinni ræðu þar sem þetta er orðið mér hugleikið eftir að hafa sett mig aðeins inn í þetta mál. Í ræðu minni í gær fór ég yfir muninn á sköttum og þjónustugjöldum samkvæmt okkar lagakerfi sem ég veit að hv. þingmaður þekkir mætavel. Þjónustugjöldum er ætlað að standa straum af kostnaði við þá þjónustu sem veitt er og sköttum er ætlað að standa straum af almennum rekstri ríkisins og þjónustu. Til þess að geta innheimt skatt eða þjónustugjöld þurfa stofnanir ríkisins lagaheimildir og þær heimildir þurfa að vera skýrar og afmarkaðar og það þarf að vera skýrt hvort um er að ræða skatt, sem sagt tekjuöflun ríkissjóðs fyrir almenn verkefni, eða þjónustugjöld sem ætlað er eingöngu að standa straum af þeirri þjónustu sem er veitt og má ekki fara umfram það. Þær áhyggjur hafa verið settar fram í umsögnum um þetta mál eða í rauninni ábendingar um að það þurfi að vera mjög skýrt í lögunum hvaða kostnaði þessum gjöldum er ætlað að standa straum af. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi skoðun á því hvort það hafi tekist í þessu frumvarpi.

Svo langar mig til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að þær heimildir sem þarna er verið að leggja til, sem eru um innheimtu þjónustugjalda, ekki skatttökuheimildir ef ég skil þetta rétt, muni duga til þess að standa straum af þeim kostnaði sem er við þetta mikilvæga eftirlit og hið mikilvæga hlutverk þessara stofnana sem þarna er rætt um. Sömuleiðis langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji rétt að kostnaður við eftirlit með þessari starfsemi komi úr vasa almennings.