breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur fyrir andsvarið. Ég verð bara að segja alveg eins og er: Endar þetta ekki allt með því að allur kostnaður, hvort sem það heitir gjöld eða skattar, kemur úr vösum almennings? Ég held að það sé bara staðreynd hringrásarkerfisins að allt sem er innheimt af ríkinu endar einhvern veginn í því að það er almenningur sem borgar. Ég fór í andsvör við hv. þm. Ásmund Friðriksson sem var framsögumaður nefndarálitsins og var einmitt að hafa áhyggjur af því hvernig þeir ætluðu að endurspegla þennan kostnað, hvernig væri fylgst með því að kostnaðurinn væri reiknaður út, hver hann væri nákvæmlega. Maður hefur líka áhyggjur af því að ef þetta er vitlaust útreiknað þá getur það valdið því að þetta stendur ekki undir þeim mannafla sem á að vinna við verkið og þá þarf kannski að fækka starfsfólki og þá byrjar ákveðinn vítahringur. Ég var að spyrja hvort þau ætluðu ekki að endurskoða þetta kannski eftir ákveðinn tíma til þess að láta reikna út hvort gjaldið stæði virkilega undir því sem það ætti að gera þannig að það væri tryggt að stofnunin væri að fá sitt fjármagn og gæti þar af leiðandi unnið sína vinnu eins og hún á að gera. Mér skildist að það væri von til þess að það væri hægt að treysta þeim til þess að reikna þetta rétt út. En eitt er að treysta einhverjum til að reikna þetta rétt út en hvort þeir fái að setja þennan rétta útreikning á reikninginn á eftir að koma í ljós. Ég vona svo heitt og innilega að það verði þannig.