154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[15:15]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég held að við séum um margt sammála þegar kemur að þessu. Mig langar til að spyrja í framhaldi af þessu hv. þingmann að því hvort hann sé ekki sammála því að það sé ósanngjarnt annað en að kostnaður við að tryggja þennan iðnað, sem er jafnan mjög arðbær vegna okkar sameiginlegu auðlinda þótt það mætti kannski vera skýrara í stjórnarskrá eða einhvers staðar annars staðar að auðlindirnar séu okkar sameiginlega eign, kostnaður sem á að tryggja einstaklingum og sjálfstæðum aðilum möguleikana á að njóta arðs af þessum sameiginlegu auðlindum okkar, komi af þeim hagnaði. Er ekki eðlilegra að hann komi þaðan heldur en úr okkar sameiginlegu sjóðum? Vitanlega þarf að vera með tilteknar stofnanir. Við þurfum að hafa þær og þær gegna ýmsu hlutverki, gegna mikilvægu hlutverki bæði við afgreiðslu leyfa og eftirlit og margt annað í stjórnsýslu þessara mála. En þegar kemur að þeim hluta stjórnsýslunnar sem snýst um að gera þessum aðilum kleift að nýta auðlindirnar samkvæmt þeim lögum og reglum sem við höfum samþykkt og í þeirra eigin þágu, telur hv. þingmaður þá ekki eðlilegt að það séu þeir aðilar sem njóta góðs af því sem standi straum af þeim kostnaði frekar en að tekið sé úr sameiginlegum sjóðum sem eiga að standa undir almennri grunnþjónustu í landinu?