154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[15:17]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég er innilega sammála. Við verðum að passa okkur á því að tryggja algerlega að allar auðlindir þjóðarinnar séu eign þjóðarinnar og renni til þjóðarinnar og við verðum líka að tryggja að sem fæstir milliliðir komi þar á milli sem geta farið að skara eld að þeirri köku. Eins og ég kom að í ræðu minni áðan þá höfðu þeir svo skýrt dæmi um það hvernig hlutirnir geta farið algerlega úr skorðum. Það er t.d., eins og ég benti á, bensíngjald og alls kyns skattar sem eru settir á bifreiðar og eiga að standa undir kostnaði við vegaframkvæmdir og annað. Þetta hefur aldrei skilað sér vegna þess að þetta skilar sér í ríkissjóð og síðan ákveður bara ríkisstjórn hvers tíma hvort hún ætli að setja smá af þessu í verkefnin. Þegar þú eyrnamerkir einhver svona gjöld eða skatta í eitthvert ákveðið verkefni þá á það auðvitað að renna í það verkefni og vera eyrnamerkt til þess að standa undir öllu því sem þessi gjöld eiga að dekka en ekki að vera í ríkissjóði og síðan eru teknar einhverjar geðþóttaákvarðanir um það hvað skilar sér vegna þessarar innheimtu og hvað skilar sér í einhver allt önnur gæluverkefni. Eins og ég segi í þessu samhengi, ég hef aldrei getað skilið það af hverju við erum komin með, þegar ég er að kaupa heimilisrafmagn, einhvern einstakling með tölvu sem er allt í einu mættur þarna og farinn að selja mér rafmagn og ég get allt í einu farið að hlaupa á milli aðila og sparað mér einhverja aura með því að finna einhvern nýjan aðila til að selja mér rafmagn sem ég gat áður fengið beint frá orkufyrirtækinu. Ég bara skil ekki svona milliliði. Þetta er eitt af því sem við eigum að stoppa.