breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Þetta er áhugaverð umræða. Hv. þingmaður vék svo sem að ýmsu í sinni ræðu. Það sem mér er hugleikið í tengslum við þetta mál eins og kannski mörgum, þar á meðal hv. þingmanni að því er mér heyrðist, er það sem kemur fram í frumvarpinu þar sem er ákveðin mótsögn. Þar segir annars vegar að þessum gjöldum sé ætlað að standa undir kostnaði við leyfisveitingar en það kemur fram samt sem áður að í rauninni muni það ekki standa undir öllum kostnaði við leyfisveitingar þar sem miðað sé við lágmarkskostnað í þeim tilvikum þar sem umsókn er fullbúin og allt í góðu og í rauninni lágmarksvinnsla. Þetta er viðurkennt berum orðum í greinargerðinni, sem segir okkur að þetta mun ekki standa undir kostnaði vegna þess að það getur aldrei farið svo að kostnaðurinn fari undir lágmark og ólíklegt að hann verði mikið í lágmarki. Þetta eru flókin umsóknarferli, það er mikið af gögnum sem þarf að skila. Það þarf að fara yfir þau og það er, held ég, nokkuð einboðið að það verði alltaf einhverjir hnökrar sem gera það að verkum að það þarf að ítreka gagnaframlagningu og annað eða gefa umsækjendum færi á að bæta úr umsókninni og annað slíkt. Það liggur því í rauninni fyrir að þetta muni ekki standa undir raunverulegum kostnaði við afgreiðslu þessara umsókna. En samt segir líka í frumvarpinu að tilgangur þess sé að standa straum af kostnaði við afgreiðslu þessara umsagna.
Mig langar kannski bara að byrja á að spyrja hv. þingmann hvort hún skilji þetta betur en ég.