154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[15:38]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka kærum samstarfsmanni og hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttir Gunnarsdóttur kærlega fyrir spurninguna sem var í reynd: Skilur þingmaðurinn þetta betur en ég? Ég ætla a.m.k. undir það sjónarmið að allt uppleggið er að hér sé um þjónustugjald að ræða, að greiðsla eigi ekki að vera umfram eiginlegan kostnað, en sú röksemd gengur auðvitað í báðar áttir, að greiðsla standi þá undir a.m.k. eiginlegum kostnaði og það er auðvitað sérstakt ef svo er ekki.

Nú ætla ég ekki að þykjast vera sérfræðingur í ferlum hjá þessari tilteknu stofnun. Ég átta mig ekki á því hvort það sé mjög ólíkt í hverju máli fyrir sig hver hinn eiginlegi kostnaður er og hvort það sé þá í því samhengi verið að miða við einhver almenn viðmið eða ekki. En eins og ég nefndi hér í minni ræðu þá finnst mér algjörlega sjálfsagt í þessu samhengi að þeir sem sækja um leyfi greiði þjónustugjöld fyrir afgreiðslu þessara mála. Mér sýnist nú að þeir aðilar sem hér eiga undir séu sammála því líka og að það sé almannahagsmunamál að leyfisveitingaferlið geti gengið hraðar fyrir sig en er í reynd. Hitt er nefnilega að þegar stofnarnir eru vanfjármagnaðar og hægagangurinn fer að verða sýnilegur hagsmunaaðilum en líka almenningi og til umræðu á pólitískum vettvangi þá gerist það eins og hefur gerst hérna gagnvart Orkustofnun, að pólitísk umræða, orðræða gagnvart embættismönnum og starfsfólki opinberra stofnana verður óþarflega harðskeytt, fólki sem annar ekki málaþunganum. Í því samhengi held ég að þjónustugjöldin séu jákvæð.