breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Forseti. Já, það er í þessari seinni umferð sem við höfum styttan ræðutíma þar sem það er svo mikill áhugi á því að eiga þetta samtal við hv. þingmann. Ég ætla að taka hv. þingmann á orðinu og taka upp þráðinn þar sem hún sleppti varðandi akkúrat pólitísku ábyrgðina á því að þessar stofnanir geti ekki með góðu móti staðið undir lögbundnu hlutverki sínu. Ég er sammála hv. þingmanni að pólitísk eða ópólitísk umræða um það að stofnanirnar geti ekki með góðu móti sinnt sínu hlutverki lendi gjarnan með ósanngjörnum hætti á starfsfólki sem vinnur bara úr því sem það hefur úr að moða. Mig langar þá bara til þess að tala hreint út og spyrja hv. þingmann hverja hún telur ástæðuna fyrir því að þessar stofnanir eru vanfjármagnaðar, hvort það sé kerfisbundið vandamál þegar kemur að leyfsveitinga- og jafnvel eftirlitsstofnunum hér á landi eða hvort þetta sé einhver tilviljun eða hvað liggi þarna að baki. Hvort hv. þingmaður hafi skoðun á því.