154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[15:42]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mér finnst þetta mjög áhugaverð spurning hjá hv. þingmanni. Og af því að ég sé að hér sitja nefndarmenn úr fjárlaganefnd inni í þessum sal þá er þetta atriði sem hefur verið töluvert til umræðu innan nefndarinnar og tilfinning mín eftir að hafa setið þar núna í tvö eða þrjú ár er sú að það er útbreidd innviðaskuld. Hún liggur alveg fyrir og fólk þekkir hana í samhengi við biðlista í heilbrigðiskerfinu, ástand vega og ég myndi setja löggæsluna í þetta samhengi. Er þetta tilviljun? Nei, ég segi að það sé ekki tilviljun að svona stendur á og svo gerist það auðvitað þegar málaflokkur sem hefur, eins og ég nefndi hér í upphafi, beinlínis goldið fyrir það hvernig ríkisstjórnin er samsett, að allt hefur verið í pólitísku kyrrstöðu. Síðan þegar málaflokkurinn springur út í pólitískri umræðu þá er voðalega auðvelt að benda á starfsfólkið og embættismennina sem sitja með matardiskinn fullan af verkefnum og rúmlega það.