154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[15:43]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir hennar ræðu. Ég hjó eftir því að hún talaði svolítið um rammaáætlun sem hefur verið tiltölulega mikið til umræðu og einhvern veginn virðumst við ekki geta farið eftir henni, hún tekur endalausum breytingum, og svo talaði hún líka um tímaramma virkjunarleyfa og hægagang. Ég get ekki verið annað en sammála henni og ég spyr: Hvað telur hún að þurfi til að þetta verði tekið föstum tökum? Ég efast um að það sem við erum að samþykkja hér skili þeim árangri í sjálfu sér. En þarna erum við kannski að taka fyrsta skrefið í að sjá til þess að fjármagn dugi til að stoppa þennan hægagang. Þegar verkefnið er mikið eða stórt þá er kannski bara einn maður settur í það eða tveir en það þyrfti fjóra eða fimm og þá segir það sig sjálft að þá byrjar hægagangurinn

Í seinna svari væri ágætt að vita, af því að hún kom inn á Samkeppniseftirlitið og ég get ekki verið annað en innilega sammála því að við verðum að hafa virkilega gott samkeppniseftirlit og sjá til þess að það virki á öllum sviðum: Telur hún í öllu þessu ferli sem varðar rammaverkefni, Orkustofnun og það allt saman að Samkeppniseftirlitið sé nægilega virkt til að fylgjast virkilega vel með því að allt sé eins og það á að vera?