breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og mig langar að fara kannski beint í þessa spurningu sem viðkemur Samkeppniseftirlitinu. Þau hafa sjálf lýst því yfir opinberlega að sá stakkur sem þau búa við, sú fjármögnun sem Samkeppniseftirlitið býr við, geri að verkum að þau hafi litla sem enga burði til að fara í frumkvæðismál, mál að eigin frumkvæði. Þeim eru skömmtuð ákveðin verkefni sem eru lögbundin, skylduverkefni, og fjármögnunin er svo lítil að eftirlitið ræður ekki við mikið meira en það. Það ætti að vera stórkostlegt áhyggjuefni fyrir ríkisstjórn sem segist t.d. hafa áhyggjur af verðbólgu, sem segist hafa áhyggjur af samkeppni á mörkuðum, sem segist hafa áhyggjur af fákeppni. En fjármögnunin segir okkur allt aðra pólitíska sögu. Þetta hefur líka verið staðan hjá umboðsmanni Alþingis sem fær til sín erindi fólks eftir samskipti við stjórnsýsluna en hefur líka samkvæmt lögum frumkvæðisskyldu, skyldu til að leita uppi mál eða kanna stöðu þar sem þurfa þykir. Það er mikill spegill á stjórnvöld þegar þau hafa ekki metnað til að nesta svona mikilvægar stofnanir í þágu almennings betur en raun er. Mig langar í því samhengi til að nefna mál sem mér fannst sýna ótrúlega mikla hugsanavillu hvað þetta varðar. Það er frumvarp þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins sem talar um að það sé vandamál hvað lögreglan sé lengi að ljúka rannsóknum. Frumvarpið gengur út á það að það eigi í reynd að kasta sakamálum í ruslið sé sakamálarannsóknin búin að standa lengur en í tólf mánuði. Þetta eru skilaboðin.