154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[15:49]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Ég held að stóri punkturinn í þessu sé að viðurkenna í þessu tilviki tvíþætt hlutverk svona stofnana, eins og umboðsmanns Alþingis, og að stofnanir séu fjármagnaðar með þeim hætti að þær geti raunverulega sinnt verkefnum sínum. Eins og í þessu frumvarpi sem ég nefndi frá þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, af því að ég gef mér að fólk gangi gott eitt til; ef áhyggjuefni er það að sakamálarannsóknir séu að dragast úr hömlu þá er kannski sanngjarnari nálgun gagnvart því fólki sem starfar í kerfinu að skoða hvað það er sem veldur. Við sjáum t.d. hjá dómstólunum að það er aftur og aftur að gerast að dómar í sakamálum t.d. eru mildaðir vegna þess að mál hafa þótt dragast úr hömlu. Er það vegna þess að fólk í kerfinu er að vinna stuttan vinnudag og hefur ekki metnað fyrir starfi sínu? Auðvitað ekki. Það á alltaf að vera keppikefli stjórnvalda að svona rannsóknir taki skemmri tíma en mér fannst í þessu frumvarpi birtast einhver hugsanavilla um það hvernig kerfið virkar í reynd.