breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fína ræðu um þetta mikilvæga málefni. Ég vil spyrja hv. þingmann út í það sem kemur fram í greinargerð frumvarpsins um áhrif þessa frumvarps. Þar segir að áætlað sé að frumvarpið, verði það samþykkt, muni leiða tekjuaukningar hjá Orkustofnun að fjárhæð 6–13 millj. kr. á ársgrundvelli. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hvers vegna er farin sú leið að tryggja svo lága upphæð með lagabreytingu, einungis 6–13 milljónir? Hefði ekki verið nærtækara að hækka einfaldlega fjárveitinguna til þessarar stofnunar um þessar 13 milljónir? Það hefði þá ekki útheimt þá vinnu sem fór fram í ráðuneytinu og þinginu við þetta frumvarp heldur hefði einungis þurft að breyta einni tölu í fjárlögunum. Manni finnst hér smá eins og verið sé að flækja málin. En eru kannski sjónarmið sem mæla fyrir því að gjaldtökuleiðin sé farin í þessu tilfelli, svo sem vegna þess að hér sé um að ræða gjaldtöku vegna sérgreindrar iðngreinar og að það sé réttlætanlegt að afmarka gjaldtökuna við þá sem nýta þessa tilteknu þjónustu í stað þess að leggja kostnaðinn á samfélagið í heild?
Aftur á móti má segja að samfélagið í heild njóti þess vissulega þegar virkjanir eru reistar og rafmagn framleitt með grænum og vistvænum hætti. Hér er vissulega um lítið mál að ræða hvað varðar tekjuaukningu en þetta mun jafnvel leiða til þess að við séum að fjármagna ríkisstofnanir, ekki á fjárlögum heldur með sértekjum hvað þetta varðar. Hvað finnst hv. þingmanni um þetta?