154. löggjafarþing — 120. fundur,  11. júní 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[15:53]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég var bara að spyrja hv. þingmann um hvaða skoðun hann hefði á þessu atriði í frumvarpinu, varðandi þessa tekjuaukningu að fjárhæð 6–13 milljónir að hafa einhverjar sértekjur til Orkustofnunar. Annað var það ekki. Ég spurði hver skoðun hv. þingmanns væri á því. En gott og vel.

Í síðara andsvari mínu vil ég spyrja hv. þingmann út í þessar tafir sem hafa átt sér stað hjá Orkustofnun. Við fengum fréttir af því að það hefði tekið 26 mánuði að afgreiða eina einfalda kvörtun. Og svo tók 18 mánuði að afgreiða virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Er það kannski bara hefðbundinn tími sem það tekur að afgreiða virkjunarleyfi fyrir virkjanir í stærri kantinum? Ég hef ekki sérþekkingu á því hversu mikið af gögnum þarf að fara yfir og vinna þegar svona umsóknir eru í vinnslu. Kannski er það bara svona tímafrekt. Veit hv. þingmaður dæmi um að svo stórar virkjanir taki styttri tími í afgreiðslu hjá Orkustofnun? Ég veit ekki til þess. En það er annað mál að við erum með dæmi um að það taki mörg ár, t.d. læknisaðgerðir, sérbúnar íbúðir (Forseti hringir.) fyrir hreyfihamlaða o.s.frv., þetta taki allt að tíu ár. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á þessum gríðarlega biðtíma.